FréttHúsnæðismál

Rannsókn hefst á stöðu fatlaðs fólks á húsnæðismarkaði

By 17. febrúar 2026mars 10th, 2026No Comments
yfirlitsmynd yfir Tjörnina í Reykjavík og nærliggjandi hús, haustlitir.

ÖBÍ réttindasamtök standa nú fyrir mikilvægri könnun á stöðu fólks á húsnæðismarkaði. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands sér um framkvæmdina en markmiðið er að efla hagsmunagæslu.

Viðskiptavinir Tryggingastofnunnar (TR) sem skráðir eru með örorkulífeyri og sjúkra- eða endurhæfingargreiðslur munu fá bréf sent í tölvupósti með boði um þátttöku. Sams konar rannsókn var gerð árið 2022. Nú stendur til að kanna hvort breytingar hafi orðið yfir þann tíma í húsnæðismálum þessa hóps.

ÖBÍ vilja hvetja öll þau sem fá sent boð um þátttöku til þess að samþykkja það. Ef þú tekur þátt mun starfsfólk Félagsvísindastofnunar ekki  fá upplýsingar um hver svarar spurningunum og passar að aðrir viti það ekki heldur.  Þeim mun fleiri sem taka þátt í könnuninni, því betur munu gögnin nýtast í hagsmunabaráttunni.