
Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri Örtækni, Silja Bára Ómarsdóttir rektor og Eva Þengilsdóttir, framkvæmdastjóri ÖBÍ réttindasamtaka, undirrita samninginn.
ÖBÍ réttindasamtök, NýMennt á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, fyrir hönd Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG og NKG+), og FabLab Hátúni 10C (rekið af Örtækni ehf.) hafa undirritað þriggja ára samstarfs- og styrktarsamning með það að markmiði að auka vitund grunnskólabarna á málefnum fatlaðs fólks og hvetja til inngildandi nýsköpunar.
Samstarfið miðar að því að efla skilning barna á raunveruleika fatlaðs fólks og hvetja þau til að þróa lausnir sem stuðla að auknu aðgengi og samfélagslegri þátttöku. Sérstök áhersla verður lögð á að kynna hugmyndafræði inngildandi hönnunar og hvetja unga hönnuði til að taka mið af fjölbreytileika samfélagsins strax á hugmyndarstigi.
Til stendur að bæði þróa og miðla sérstöku kennslu- og fræðsluefni fyrir grunnskóla sem fjallar um mannréttindi, fötlun og inngildandi hönnun. Efnið verður unnið í samráði við fatlað fólk og tekur mið af reynslu þess og sjónarmiðum. Markmiðið er að styðja kennara í að fjalla um þessi málefni á aðgengilegan og uppbyggilegan hátt.
NýMennt mun gegna lykilhlutverki í að kynna svokallaðan mannréttindaflokk innan Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og styðja nemendur í þróun hugmynda sem tengjast málefnum fatlaðs fólks.
FabLab Hátúni 10C mun leggja til aðstöðu sína og sérfræðiþekkingu til að styðja við nemendur sem vilja þróa hugmyndir sínar áfram. Nemendum gefst kostur á að vinna frumgerðir í FabLab undir handleiðslu sérfræðinga, með áherslu á að efla sjálfstraust og færni í anda „hjálpar til sjálfshjálpar“.
Samstarfið markar mikilvægt skref í átt að aukinni vitund, inngildingu og nýsköpun meðal ungs fólks, þar sem mannréttindi og fjölbreytileiki eru höfð að leiðarljósi.

