FréttKjaramál

Vísitölufrumvarpið samþykkt á Alþingi

ÖBÍ réttindasamtök fagna því að Alþingi hafi í dag samþykkt frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um að hækkanir almannatrygginga taki mið af launavísitölu og verðlagi, í stað launaþróunar og verðlags eins og verið hefur. ÖBÍ bindur vonir við að með þessu verði hægt að vinda ofan af þeirri kjaragliðnun sem hefur átt sér stað.

Miklar umræður hafa skapast um frumvarpið bæði innan þings og úti í samfélaginu síðustu vikurnar. Eðlilega er tekist á um opinber fjármál en vert er að taka fram að umræðan hefur að miklu leyti verið til þess fallin að niðurlægja þann hóp fólks sem reiðir sig á lífeyrisgreiðslur almannatrygginga.

Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, benti á í grein sinni á Vísi það fyrir tæpum mánuði, að því hafi til dæmis ítrekað verið fleygt fram í umræðunni að meginþorri öryrkja hafi það betra en fólk á vinnumarkaði. Að rangir hvatar felist í frumvarpinu og nú muni holskefla fólks sækja um örorku í stað þess að vinna. Slíkar vangaveltur eru í reynd fjarstæðukenndar.

Örorkulífeyriskerfið er hannað til að grípa einstaklinga vegna alvarlegra veikinda, slysa og áfalla og matsferlið er langt og strangt. Það velur sér enginn að missa starfsorku. ÖBÍ hvetur stjórnmálamenn og aðra til þess að tala af virðingu um fatlað fólk og byggja umræðu um málefni þess á staðreyndum.