Skip to main content
HeilbrigðismálRéttarkerfiUmsögn

Heilbrigðisstarfsmenn (tilkynningar um heimilisofbeldi)

By 3. apríl 2023apríl 5th, 2023No Comments

ÖBÍ réttindasamtök taka undir að ráðist verði í aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi, að réttarstaða brotaþola verði bætt og forvarnir og fræðsla efld með nýju frumvarpi um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Sömuleiðis er því fagnað að sérstakt tillit verði tekið til aðstæðna fatlaðra einstaklinga við framkvæmd ákvæðisins.

Hér að neðan má lesa umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um frumvarpið:

Umsögn ÖBÍ – réttindasamtaka um frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, nr. 34/2012 (tilkynningar um heimilisofbeldi), 856. mál.

ÖBÍ – réttindasamtök taka heilshugar undir að ráðist verði í aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi, að réttarstaða brotaþola skuli bætt og forvarnir og fræðsla skuli efld.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem Ísland er aðili að leggur áherslu á skyldur aðildarríkja til að vernda fatlað fólk, jafnt innan heimilis sem utan fyrir hvers kyns ofbeldi, sbr. 16. gr. samningsins. Íslenskar sem erlendar rannsóknir sýna að fatlað fólk er í sérstökum áhættuhópi sem þolendur ofbeldis. Kannanir sýna einnig að meiri líkur eru á að fatlað fólk verði fyrir ofbeldi en þeir sem ófatlaðir teljast. Einkum eru ungar konur sem glíma við fötlun líklegri til að verða fyrir kynferðisbroti.

Tekið er fram að í skýringum við greinina verði reifað það verklag sem gengið er út frá að verði innleitt í heilbrigðisþjónustu vegna heimilisofbeldismála, þ.m.t. að heilbrigðisstarfsmaður geti haft samband við réttindagæslumann vegna heimilisofbeldis gagnvart fötluðum einstaklingi. ÖBÍ fagnar því að tekið verði sérstakt tillit til aðstæðna fatlaðra einstaklinga við framkvæmd ákvæðisins.

Ekkert um okkur án okkar!

Með vinsemd og virðingu,

Þuríður Harpa Sigurðardóttir
formaður ÖBÍ

Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur


Heilbrigðisstarfsmenn (tilkynningar um heimilisofbeldi). 856. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 3. apríl 2023