Skip to main content
Umsögn

74. mál. Almannatryggingar (kostnaður við framkvæmd greiðslna). 2020

By 15. maí 2020No Comments
Nefndasvið Alþingis
Velferðarnefnd
Austurstræti 8-10
150 Reykjavík

                                                                                                           Reykjavík, 26.2.2020

Efni:  Umsögn Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ) um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 (kostnaður við framkvæmd greiðslna) þingskjal 74  – 74 mál. 

ÖBÍ lýsir stuðningi við frumvarpið sem hér er til umsagnar og felst í að Tryggingastofnun skuli greiða allan kostnað vegna greiðslna opinberra réttinda svo að girt sé fyrir mismunun á grundvelli búsetu að þessu leyti. Þessi kostnaður getur verið umtalsverður fyrir lífeyrisþega og þá sérstaklega sem hlutfall af þeirra tekjum.

Bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 eru greiddar úr landi til lífeyrisþega sem flytja lögheimili sitt til annars aðildarríkis EES-samningsins. Hins vegar eru bætur og greiðslur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð nr. 99/2007 ekki greiddar úr landi, sem hefur í för með sér að greiðslur til þeirra frá TR lækka við að flytja lögheimili úr landi.

Ekkert um okkur án okkar.

Þuríður Harpa Sigurðardóttir
Formaður ÖBÍ