Skip to main content
Frétt

Þingmaður leiðréttur: Ríkisstjórnin hefur ekkert gert

By 21. febrúar 2019No Comments

Frítekjumark atvinnutekna örorkulífeyrisþega hefur staðið í stað í tíu ár. Samt sem áður fullyrti þingmaður Vinstri-grænna í ræðustól Alþingis í gær, að ríkisstjórnin hefði fjórfaldað frítekjumarkið. Þetta er því miður ekki sannleikanum samkvæmt og ÖBÍ bendir á að örorkulífeyrisþegar sæta enn hinum grimmu krónu-á-móti-krónu skerðingum. Uppfært: Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður VG, hefur birt leiðréttingu á ummælum sínum og afsökunarbeiðni. Um það er fjallað hér að neðan.

Röng fullyrðing

Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri-grænna, kom upp í störfum þingsins á Alþingi í gær. Þar talaði hann um tillögur ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í skattamálum, en þær hafa verið harðlega gagnrýndar með réttu. Ólafur Þór taldi upp meint afrek ríkisstjórnarinnar í átt til jöfnuðar. Meðal annars sagði hann þetta:

„Ríkisstjórnin hefur hækkað frítekjumark vegna atvinnutekna elli- og örorkulífeyrisþega úr 25.000 í 100.000 kr.“

Þetta er rangt.

Óbreytt í áratug

Ríkisstjórn Vinstri-grænna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, sem setið hefur í rúmt ár, hefur ekki hækkað frítekjumark örorkulífeyrisþega. Frítekjumark örorkulífeyrisþega hefur staðið í stað í áratug. Um þetta er meðal annars fjallað í umsögn ÖBÍ um frumvarp sem kom fram á Alþingi fyrir ári, um afnám skerðingar ellilífeyris vegna atvinnutekna.

Frítekjumarkið hefur verið óbreytt frá árinu 2009.

„Frítekjumarkið hefur verið óbreytt frá árinu 2009. Á meðan frítekjumarkið stendur í stað og laun á vinnumarkaði hækka, þá skila launahækkanir sér ekki til örorkulífeyrisþega.“ 

Í umsögninni kemur jafnframt fram að frítekjumarkið er nú um 110 þúsund krónur á mánuði. Hefði það hækkað í samræmi við hækkun launavísitölu frá árinu 2009 ætti það að nema rúmum 200 þúsund krónum á mánuði.

Grimmari skerðingar

ÖBÍ bendir á að stór hópur örorkulífeyrisþega þarf enn að glíma við grimmar skerðingar sem halda fólki í fátæktargildru. Þetta er krónu-á-móti-krónu skerðingin, sem gerir fólki með skerta starfsgetu nánast ókleift að bæta sinn hag, til dæmis með hlutastarfi. Við hverja einustu krónu sem fólk vinnur sér inn eða hefur í lífeyristekjur, er framfærslan (sérstök framfærsluppbót) skert að fullu á móti.

Þingmanninum og ríkisstjórn hans yrði sómi að því að hækka frítekjumark atvinnutekna örorkulífeyrisþega upp í 200 þúsund og afnema krónu-á-móti-krónu skerðinguna strax. Þá hefði þingmaðurinn og ríkisstjórnin eitthvað til að stæra sig af.

uppfært:

Þingmaður biðst afsökunar á mistökum

Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri-grænna hefur birt afsökunarbeiðni á Facebook síðu sinni og leiðréttingu á ummælum sínum í ræðustóli Alþingis. Það er virðingarvert. Færsla Ólafs Þórs fer hér á eftir:

„Í gær urðu mér á þau mistök í þingræðu að segja að frítekjumark atvinnutekna elli og örorkulífeyrisþega hefði verið hækkað úr 25 í 100 þúsund. Hið rétta er að frítekjumark ellilífeyrisþega hefur verið hækkað sem þessu nemur. Ég biðst einlæglega afsökunar á þessu. Starfshópur á vegum félags -og barnamálaráðherra vinnur nú að tillögum um breytingar á almannatryggingakerfinu sem eiga að gagnast öryrkjum sérstaklega.“