Skip to main content
Frétt

Verum sýnileg – Tökum pláss!

By 25. apríl 2018No Comments

Við ætlum að vera sýnileg í kröfugöngunni 1. maí. Við ætlum að taka pláss og leggja þunga áherslu á kröfur okkar með fjöldanum. Mætum öll. Tökum makann, börnin, ættingja og vini með okkur. Við erum í harðri baráttu fyrir betri kjörum. Sýnum það í verki!

Við ætlum að safnast saman hjá Hlemmi – þar sem nú er mathöll – klukkan eitt. Við útbýtum kröfuspjöldum og regnslám og peppum okkur saman áður en gangan heldur af stað kl. 13:30. 

Útifundur verður á Ingólfstorgi kl. 14:10, en ÖBÍ verður með viðburð á Lækjartorgi þegar gangan fer þar hjá. Þar má enginn láta sig vanta. Við ætlum að sýna hvernig spilað er með fólk! 

Hressing, kakó, kaffi og kleinur í boði.