Skip to main content
Umsögn

14. og 15. Frekari upplýsingar og minnislisti

By 8. október 2020júní 12th, 2023No Comments

14. Frekari upplýsingar

Önnur þjónusta

Þrátt fyrir þriðju bylgju COVID-19 munu sveitarfélögin reyna eftir fremsta megni halda starfsemi sem heyra undir þau opinni. Um þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk gilda sérstakar leiðbeiningar fyrir velferðarþjónustu sem finna má hér [PDF].

Rakning C-19 appið

Fatlað fólk sem og aðrir þjóðfélagsþegnar eru hvattir til að hlaða niður smitrakningarappi almannavarna og hvetja vini og vandamenn og þá sem koma í heimsókn til þess að gera slíkt hið sama. Appið er að finna hér á www.covid.is

Upplýsingasíður

Á www.covid.is er hægt er að finna svör við mörgum spurningum undir spurt og svarað. Velja þarf sjá allt. Þar er líka umræða um andlega líðan á tímum COVID-19, hvar má leita aðstoðar og stuðnings og góð ráð. Þetta má finna undir Líðan okkar á www.covid.is. Á covid.is eru góð ráð um hvernig forðast má smit.

Hér má finna upplýsingar um aðgengilegar gönguleiðir og útvist. Einnig er hægt að finna góðar upplýsingar á eftirtöldum stöðum:
    • www.landlaeknir.is
    • www.samband.is
    • www.felagsmalaraduneyti.is
    • www.npa.is
    • www.covid.is

15. Minnislisti

  • Handhreinsun – sápa og vatn eða handspritt
  • Nálægð – 2 metra nálægðartakmörk
  • Jákvæðni – forðast neikvæðar hugsanir
  • Svefn – nægur svefn
  • Næring – holl og fjölbreytt fæða
  • Heimsending – á mat og þjónustu, ef hægt er, fá aðstoð ef þarf
  • Dagsbirta – njóta birtu á daginn
  • Hreyfing – inni eða úti
  • Tengslanet – samskipti við fjölskyldu og vini, nota síma og samfélagsmiðla
  • Lyf – taka öll lyf skv. læknisráði
  • Heilsugæsla/Læknavaktin – hafa samband ef þarf (ný einkenni, breyting á einkennum undirliggjandi sjúkdóms, hugsanleg sýking o.fl.)

Lokakafli   Efnisyfirlit