Árið í hnotskurn

Starfsárið 2025–2026 var eitt það viðburðaríkasta í 65 ára sögu ÖBÍ. Stórir áfangar náðust í réttindabaráttunni og starf samtakanna hélt áfram að vaxa.
  • Samningurinn varð að lögum. Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks 12. nóvember 2025.
  • Alþjóðleg kvörtunarleið opnaðist. Ísland fullgilti valfrjálsu bókunina við samninginn 9. júní 2026.
  • Mikilvægur áfangi í kjaramálum. Samþykkt var að hækkanir almannatrygginga taki mið af launavísitölu og verðlagi.
  • Baráttan gegn biðlistum hélt áfram. Herferðin Biðlistinn gerði bið eftir lögbundinni þjónustu sýnilega í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
  • Fátæktargildran vakti landsathygli. Gjörningurinn var tilnefndur til þriggja verðlauna Lúðursins og vann tvenn.
  • ÖBÍ stóð að tíu dómsmálum. Sex voru fyrir dómstólum og fjögur í undirbúningi. Mál vegna biðar eftir húsnæði og NPA voru þar á meðal.
  • Gjaldfrjáls ráðgjöf var áfram mikilvæg. Erindin vörðuðu meðal annars framfærslu, húsnæði, NPA, hjálpartæki, stuðningsþjónustu og réttindi fatlaðra barna.
  • Ný samstarfsverkefni sett af stað. Þau vörðuðu meðal annars atvinnu, réttindi fatlaðra fanga, vernd fatlaðra kvenna og stúlkna gegn ofbeldi, hinsegnleikann, listir, íþróttir og útivist.
  • ÖBÍ veitti í fyrsta sinn verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni til meistara- og doktorsgráðu með áherslu á fatlað fólk eða fötlunarfræði.
  • Unndís opnaði fleiri dyr. Fyrirtæki og stofnanir fengu ráðgjöf og stuðning við að fjölga hlutastörfum fyrir fatlað fólk.
  • Nýsköpun og aðgengi. Uppbygging FabLab í Hátúni hófst og Mannréttindaflokkur var stofnaður í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna.
  • Mannréttindahúsið stækkað. Fjórtán ný félög fluttu inn og yfir 40 félög hafa nú aðsetur í húsinu.
  • Aðildarfélög ÖBÍ urðu 43. Fræðslustarf, formannafundir og samráð við félögin hélt áfram allt starfsárið.
  • Virkt samráð. ÖBÍ skilaði inn 130 umsögnum til Alþingis, ráðuneyta og Reykjavíkurborgar á starfsárinu.
  • Sýnileiki ÖBÍ jókst. Færslur á Facebook náðu til 239 þúsund manns og fylgjendum fjölgaði á öllum helstu samfélagsmiðlum.
  • Fjárfest var í réttindum og tækifærum. ÖBÍ veitti samtökum, verkefnum og einstaklingum styrki að fjárhæð 753 milljónir króna.
  • Reksturinn stóð traustum fótum. Afkoma ársins var jákvæð um 246 milljónir króna.
  • ÖBÍ eignaðist alla fasteignina að Sigtúni 42, Mannréttindahúsið.

Ávarp formanns

Starfsárið 2025–2026 markaði tímamót í réttindabaráttu fatlaðs fólks. Áratugalöng krafa um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks varð að veruleika, nýju örorkulífeyriskerfi var fylgt eftir og baráttan fyrir sjálfstæðu lífi, aðgengi, öryggi og þátttöku hélt áfram á öllum vígstöðvum.

Árið var líka 65. afmælisár ÖBÍ og því ber að fagna. Saga samtakanna er saga fólks sem hefur neitað að sætta sig við að mannréttindi ráðist af geðþótta, biðlistum eða fjárhag. Aðferðunum hefur fjölgað en verkefnið er hið sama: að tryggja fötluðu fólki líf til jafns við aðra.

Starfsárið sem leið bar þess merki hve víðtækt starf ÖBÍ er. Samtökin sendu inn fjölda umsagna, tóku þátt í samráði við stjórnvöld, héldu fundi og fræðsluviðburði, studdu við málflutning fyrir dómstólum, sinntu samstarfi við aðildarfélög og mannréttindasamtök og komu að vitundarvakningu um kjör, biðlista, ofbeldi, stafrænt aðgengi og þátttöku fatlaðs fólks.

Stærsti einstaki áfanginn var lögfesting SRFF, sem við höfum barist saman fyrir um langa hríð. Lögfestingin skapar skýrari rétt, sterkari stöðu og betri grundvöll til að krefjast úrbóta. Nú tekur við að tryggja að lögfestingin skili sér í stjórnsýslu, þjónustu, fjárveitingum og daglegu lífi fatlaðs fólks.

Kjaramál voru annað stórt viðfangsefni ársins. Eftir gildistöku nýs örorkulífeyriskerfis 1. september 2025 hófst mikil vinna við að fylgja breytingunum eftir, greina áhrif þeirra og halda áfram að þrýsta á að kjör fatlaðs fólks dragist ekki aftur úr. Samþykkt vísitölufrumvarpsins í mars 2026 var mikilvægur áfangi í þeirri baráttu.

Árangurinn er sameiginlegur og hefði ekki náðst nema fyrir mikilvægt framlag allra þeirra sem að starfinu hafa komið. Ég þakka aðildarfélögum, sjálfboðaliðum, starfsfólki og samstarfsaðilum fyrir þekkingu, úthald og samstöðu.

Líkt og endranær var af nægu að taka á starfsárinu og verkefnin jafn fjölbreytt og þau voru mörg. Samtal og samráð eru áfram meðal mikilvægustu stoða réttindabaráttunnar, enda byggist árangur í málefnum fatlaðs fólks á virku samstarfi, gagnkvæmri virðingu og sameiginlegum skilningi. Á árinu áttu formaður og aðrir fulltrúar ÖBÍ fjölmarga fundi með ráðherrum, fulltrúum opinberra stofnana og sveitarfélaga, auk þess sem reglubundið samráð fór fram á ýmsum vettvangi.

ÖBÍ átti fundi með fulltrúum fjölmargra opinberra stofnana og fyrirtækja. Þá átti formaður reglubundið samráð við fulltrúa Tryggingastofnunar ríkisins og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar þar sem rædd voru sameiginleg verkefni og skipst á upplýsingum, reynslu og sjónarmiðum til að styðja við framgang hagsmunamála fatlaðs fólks.

Formaður kom að störfum fjölmargra nefnda, ráða og starfshópa þar á meðal réttindavaktar, samráðsnefndar um málefni fatlaðs fólks, verkefnisstjórnar landsáætlunar í málefnum fatlaðs fólks, framtíðarhóps, geðráðs og ráðgjafanefndar Mannréttindastofnunar Íslands. Með þeirri þátttöku áttu samtökin virkan þátt í stefnumótun, samráði og eftirfylgni mikilvægra hagsmunamála. Málefnahópar ÖBÍ héldu áfram öflugu samstarfi við stjórnvöld og samstarfsaðila. Hóparnir skiluðu fjölmörgum umsögnum um lagafrumvörp, reglugerðir og önnur mál sem varða réttindi og hagsmuni fatlaðs fólks og tóku jafnframt þátt í umfjöllun og afgreiðslu þeirra á vettvangi Alþingis. Notendaráð ÖBÍ störfuðu einnig af krafti á árinu og héldu reglulega fundi þar sem unnið var að fjölbreyttum verkefnum og hagsmunamálum, í samræmi við öflugt starf undanfarinna ára.

Réttindabarátta ÖBÍ byggir á öflugu framlagi starfsfólks og sjálfboðaliða sem leggja samtökunum lið af metnaði og hugsjón. ÖBÍ færir öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum á árinu innilegar þakkir fyrir mikilvægan stuðning, þátttöku og ómetanlegt framlag. Á árinu kvöddu Ægir Lúðvíksson, MND á Íslandi, Birna Einarsdóttir, Gigtarfélaginu og Ingi Hans Ágústsson, HIV Íslandi. Þeirra er minnst með hlýhug og djúpu þakklæti.

Skýrsla formanns og stjórnar

Réttindabarátta ÖBÍ fer fram á mörgum vígstöðvum; á Alþingi, í ráðuneytum og sveitarfélögum, fyrir dómstólum, á vinnumarkaði og í beinu samtali við aðildarfélög og almenning. Hér eru helstu verkefni og niðurstöður starfsársins.

Stjórn ÖBÍ réttindasamtaka 2025-2026. Ljósmyndari: Ruth Ásgeirsdóttir.

Áfangar sem breyttu stöðunni

Samningurinn orðinn að lögum

Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks 12. nóvember 2025. Samningurinn varð þar með hluti af íslenskum rétti og áratugalöng krafa ÖBÍ og annarra mannréttindasamtaka náði fram að ganga.

Lögfestingin styrkir möguleika fólks til að vísa beint til samningsins og gerir skýrari kröfur til stjórnvalda um að lög, reglur, stjórnsýsla og þjónusta samræmist honum.

ÖBÍ hefur fylgt áfanganum eftir með upplýsingagjöf og samtali við stjórnvöld. Ráðuneytum landsins var færð að gjöf bók sem fjallar um samninginn í tilefni áfangans. Vert er að hafa í huga að lögfestingin sjálf er hvergi nærri lokapunktur réttindabaráttunnar. Nú þarf að tryggja að Ísland standi undir öllum ákvæðum samningsins.

Alþjóðleg kvörtunarleið opnast

Ísland fullgilti valfrjálsu bókunina við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks 9. júní 2026. Með fullgildingunni geta einstaklingar og hópar sent kvörtun til nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks telji þeir að íslenska ríkið hafi brotið gegn réttindum þeirra samkvæmt samningnum. Almennt þarf fyrst að hafa fullreynt tiltækar kæruleiðir innanlands.

Nefndin er ekki alþjóðlegur áfrýjunardómstóll en getur tekið afstöðu til þess hvort brotið hafi verið gegn samningnum og beint tilmælum til ríkisins um úrbætur. Bókunin styrkir þannig réttarstöðu fatlaðs fólks, eykur aðhald með stjórnvöldum og getur varpað ljósi á kerfisbundin réttindabrot.

Réttindin stytta ekki biðlista

ÖBÍ tók sem fyrr þátt í 1. maí göngunni og krafðist aukinna atvinnutækifæra fyrir fatlað fólk og endaloka biðlista eftir lögbundinni þjónustu. Biðlistinn, herferð ÖBÍ sem unnin var af ENNEMM í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, setti svip sinn á gönguna og gerði bið eftir réttindum sýnilega. Gengið var undir forgönguborða, áletruðum Velkomin í röðina, og merkt var sérstök kosningaskrifstofa í Austurstræti þar sem gestir voru hvattir til að skrá sig á biðlista til að bíða eftir að hún opnaði.

Skilaboðin voru einföld:

Langvarandi bið skerðir sjálfstæði, lífsgæði og þátttöku. Biðlistar mega aldrei verða eðlilegt ástand.

Að göngu lokinni var boðið til kaffis í Mannréttindahúsinu. Þátttakan undirstrikaði áframhaldandi þátt ÖBÍ í breiðari réttinda- og verkalýðsbaráttu.

65 ár – og horft fram á veginn

ÖBÍ réttindasamtök fögnuðu 65 ára afmæli sínu í Mannréttindahúsinu í maí 2026 og var afmælishátíðin mjög vel sótt.

Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ávörpuðu samkomuna. DJ ANNAMARKAR lék tónlist og aðildarfélög ÖBÍ kynntu starfsemi sína á kynningarbásum. Myndband var sýnt þar sem stiklað var á stóru í sögu ÖBÍ og Magnús Orri Arnarson, handhafi hvatningarverðlauna ÖBÍ, sýndi mynd sína Sigur fyrir sjálfsmyndina. Afmælishátíðin var góður vettvangur samtals, tengslamyndunar og sýnileika aðildarfélaganna.

Sveitarstjórnarkosningar og sveitarfélög

ÖBÍ lagði ríka áherslu á að umræða um réttindi fatlaðs fólks og stöðu yrði áberandi í kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2026. Sveitarfélög bera lykilábyrgð á mörgum sviðum sem skipta fatlað fólk máli, svo sem þjónustu, húsnæði, aðgengi og námi.

Biðlistaherferð í samstarfi við ENNEMM spilaði stórt hlutverk í miðlun ÖBÍ fyrir kosningarnar. Að auki átti ÖBÍ fundi með framboðum, miðlaði mikilvægum upplýsingum og tók þátt í samfélagslegri umræðu um málefnin.

Nýtt örorkukerfi: eftirfylgni skiptir sköpum

Nýtt örorkulífeyriskerfi tók gildi 1. september 2025 og í ljósi þess hversu umfangsmikil breytingin var skiptir verulegu máli að greina áhrifin, miðla upplýsingum og þrýsta á að breytingarnar skili tilætluðum árangri. Ber þar helst að nefna aukið framfærsluöryggi lífeyristaka og meiri möguleika til atvinnuþátttöku.

Vinna ÖBÍ að þeim markmiðum endurspeglast meðal annars í Unndísi, samstarfsverkefni samtakanna og Vinnumálastofnunar sem styður atvinnurekendur með ráðgjöf, fræðslu og eftirfylgd svo fleiri hlutastörf verði að veruleika.

ÖBÍ leggur áherslu á að kerfið mæti fólki þar sem það er statt, virði starfsgetu og takmarkanir og byggi á mannréttindasjónarmiðum fremur en tortryggni.

Lífeyrir fylgir launaþróun

Alþingi samþykkti í mars 2026 að hækkanir almannatrygginga tækju mið af launavísitölu og verðlagi. Breytingin er mikilvægt skref gegn kjaragliðnun hjá fólki sem reiðir sig á lífeyrisgreiðslur almannatrygginga.

Umræðan um frumvarpið var á tíðum afar harkaleg, bæði á þingi og í samfélaginu í heild. ÖBÍ lagði áherslu á að opinber umræða um fatlað fólk og lífeyrismál byggist á staðreyndum og að hún fari fram af virðingu.

Fátæktargildran

ÖBÍ stóð fyrir gjörningnum Fátæktargildran á alþjóðlegum baráttudegi gegn fátækt, 17. október 2025. Gildran var sett upp fyrir framan Alþingishúsið þar sem hún vakti mikla athygli fjölmiðla, vegfarenda og lögreglu. Hún var síðan flutt í Smáralind þar sem gestum verslunarmiðstöðvarinnar gafst kostur á að skoða hana, fræðast um fátækt og koma á framfæri skilaboðum til stjórnvalda.

Gjörningurinn var unninn í samstarfi við auglýsingastofuna Brandenburg. Vitundarvakningin fékk þrjár tilnefningar til Lúðursins og vann til tvennra verðlauna.

Frétt RÚV á Instagram

Unndís opnar dyr

ÖBÍ kynnti Unndísi, aðferð til að styðja fyrirtæki og stofnanir við að fjölga störfum fyrir fatlað fólk, í kjölfar breytinga á örorkulífeyriskerfinu. Komið var upp upplýsingasíðu fyrir atvinnurekendur og fjölmargir fundir haldnir.

Starfsfólk ÖBÍ hefur kynnt Unndísarverkefnið fyrir fyrirtækjum, stofnunum og mannauðsfólki, meðal annars á Mannauðsdeginum í október 2025.

Öryggi er líka mannréttindi

ÖBÍ beindi sjónum að ofbeldi gegn fötluðu fólki, einkum konum og stúlkum. Samtökin tóku þátt í 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi, unnu með UN Women á Íslandi og gerðu samstarfssamning við Kvennaathvarfið sem miðar að því að efla vernd fatlaðra kvenna og stúlkna gegn ofbeldi.

Vinnan náði einnig til hatursorðræðu, stafræns ofbeldis, almannavarna og verndar barna á netinu. Fatlað fólk er sérstaklega útsett fyrir ofbeldi og berst ÖBÍ gegn því í víðu samhengi, hvort sem um ræðir líkamlegt, félagslegt, andlegt, fjárhagslegt eða stafrænt ofbeldi.

Umsagnir

Umsagnir eru eitt helsta verkfæri ÖBÍ til að hafa áhrif á lög, reglugerðir og opinbera stefnumótun. Á tímabilinu 1. september 2025 til 31. ágúst 2026 birti ÖBÍ 130 umsagnir.

Umsagnirnar vörðuðu meðal annars almannatryggingar, húsnæði, menntun, heilbrigðisþjónustu, samgöngur, stafræna stjórnsýslu og fjármál hins opinbera. Breiddin, hversu víðfeðmt svið réttindabarátta fatlaðs fólks er, snertir nánast alla stjórnsýslu.

Listi yfir umsagnir

Umsagnir ÖBÍ til stjórnvalda 2022–2026

Fjöldi umsagna ÖBÍ réttindasamtaka til stjórnvalda eftir árum.

Dómsmál

ÖBÍ rekur dómsmál í eigin nafni eða styður einstaklinga þegar mál geta haft fordæmisgildi fyrir stærri hóp. Sérfræðingar samtakanna aðstoða einnig við kærur til ráðuneyta og úrskurðarnefnda og kvartanir til Umboðsmanns Alþingis.

Við lok starfsársins stóð ÖBÍ að tíu dómsmálum. Þar af voru sex fyrir dómstólum og fjögur í undirbúningi.

Finna má upplýsingar um öll mál sem rekin eru fyrir dómstólum á heimasíðu ÖBÍ auk þess að á undirsíðu eru birtar reifanir allra eldri dómsmála aftur til ársins 2000.

Í apríl 2026 dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur í tveimur málum af sjö sem ÖBÍ og Landssamtökin Þroskahjálp höfðuðu vegna áralangrar biðar eftir sértæku félagslegu húsnæði. Reykjavíkurborg var gert að greiða miskabætur vegna meðferðar umsóknanna og skorts á upplýsingum. Borgin áfrýjaði málunum til Landsréttar.

Í maí 2026 höfðaði ÖBÍ tvö mál vegna biðar eftir gildistöku NPA samninga, annað gegn Reykjavíkurborg og hitt gegn Hafnarfjarðarbæ. ÖBÍ höfðaði einnig mál í eigin nafni vegna fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir 2026 sem gerði ekki ráð fyrir fjármögnun samþykktra NPA samninga á biðlista.

Dómsmál

Framúrskarandi lokaverkefni verðlaunuð

ÖBÍ veitti í fyrsta sinn verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni til meistara- og doktorsgráðu með áherslu á fatlað fólk eða fötlunarfræði. Verðlaunin voru veitt í Mannréttindahúsinu á alþjóðadegi fatlaðs fólks, 3. desember 2025, en kallað var eftir tilnefningum frá öllum háskólum landsins.

Verðlaun fyrir framúrskarandi doktorsritgerð hlaut Sara Stefánsdóttir.

Heiti ritgerðar hennar var „Glíma seinfærra foreldra við kerfislægar hindranir út frá réttindamiðaðri nálgun. / Parents with Intellectual Disabilities Negotiating Systemic Challenges through a Rights Based Approach.“

Verðlaun fyrir framúrskarandi meistararitgerð hlaut Bjarney Lárudóttir Bjarnadóttir. Heiti ritgerðarinnar var „„Allir eiga að vera mega hressir og með brennandi áhuga“. Kröfur um samskiptahæfni í atvinnuauglýsingum og upplifun einhverfra einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði.“

Hvatningarverðlaun ÖBÍ

Hvatningarverðlaun ÖBÍ voru veitt á alþjóðadegi fatlaðs fólks 3. desember 2025 við hátíðlega athöfn. Dómnefnd valdi fjórar tilnefningar úr tillögum almennings.

Magnús Orri Arnarson hlaut verðlaunin í ár fyrir heimildarmyndina Sigur fyrir sjálfsmyndina, sem fylgir keppendum á heimsleikum Special Olympics. Halla Tómasdóttir forseti Íslands afhenti verðlaunin.

Með kvikmyndum og þáttagerð hefur Magnús Orri aukið sýnileika fatlaðs fólks og sýnt hvað tækifæri, aðgengi og traust geta leyst úr læðingi.

Tilnefningar 2025

  • Hákon Atli Bjarkason – fyrir að vera fyrirmynd og stuðla að inngildingu ungs fatlaðs íþróttafólks.
  • Listvinnzlan – fyrir brautryðjendastarf á sviði listsköpunar fatlaðs fólks og fjölgun atvinnutækifæra.
  • Sigurður Hólmar Jóhannesson – fyrir að lyfta grettistaki í málaflokki fatlaðra barna og barna með sjaldgæfa sjúkdóma.
  • Magnús Orri Arnarson – fyrir einstakt framlag á sviði vitundarvakningar, kvikmyndagerðar og íþrótta

Átakið Upplýst samfélag setti einnig svip á daginn. Opinberar byggingar og menningarhús voru lýst fjólublá og auglýsingar, með stuðningi Íslenskrar getspár, minntu á réttindabaráttu fatlaðs fólks.

Samstarf sem skilar breytingum

Samstarf er eitt öflugasta verkfærið í réttindabaráttu. Með samhentu átaki ólíkra aðila að sama markmiði má ná gríðarlegum árangri og í leiðinni efla þekkingu allra sem að samstarfinu koma.

ÖBÍ vann með aðildarfélögum, stofnunum, mannréttindasamtökum, skólum og fyrirtækjum að verkefnum sem styrkja réttindi, þátttöku og sýnileika.

Betri vernd með Kvennaathvarfinu

ÖBÍ og Kvennaathvarfið gerðu þriggja ára samning til ársloka 2028. Markmiðið er að efla vernd fatlaðra kvenna og stúlkna gegn ofbeldi, bæta aðgengi að upplýsingum og stuðningi og miðla ráðgjöf um aðgengi í nýju húsnæði athvarfsins.

Réttindi fatlaðra fanga

ÖBÍ og Afstaða undirrituðu samstarfssamning um réttindi fatlaðra fanga. Einnig var fjallað um samstarf um stuðning við einstaklinga sem ljúka afplánun, meðal annars í tengslum við EXIT. Verkefnin snúa að hópi sem getur reynst berskjaldaður gagnvart réttindabrotum, þjónustuleysi og félagslegri einangrun.

Við tilheyrum – líka undir regnboganum

Þriggja ára samstarf ÖBÍ við Hinsegin daga styrkti tengsl við Hinsegin daga og Samtökin ’78. Undirbúningshópur hinsegin fatlaðs fólks vann eftir leiðarstefinu „Ekkert um okkur án okkar“.

ÖBÍ tók þátt í Gleðigöngunni og Regnbogaráðstefnunni annað árið í röð og hélt kynningarkvöld fyrir hinsegin fatlað fólk með Samtökunum ’78.

Skilaboð ársins voru „Við tilheyrum!“ og var áhersla lögð bæði á fjölbreytileika hinsegin fatlaðs fólks og baráttu gegn margþættri mismunun.

Ábendingar til Sameinuðu þjóðanna

ÖBÍ réttindasamtök, Landssamtökin Þroskahjálp, Geðhjálp og Umhyggja kynntu áherslur sínar fyrir sérfræðinefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á fundi nefndarinnar 1. september 2025. Um er að ræða þátt í yfirferð nefndarinnar á fyrstu skýrslu Íslands um innleiðingu og framkvæmd SRFF. Í ábendingum sínum benda hagsmunasamtökin á að þótt Ísland hafi stigið ákveðin jákvæð skref í átt að innleiðingu og framkvæmd samningsins, séu enn verulegir annmarkar á því hvernig mannréttindi fatlaðs fólks eru tryggð. Með ábendingunum gera samtökin tillögur um að nefndin bæti tilteknum spurningum við spurningalista nefndarinnar sem hún mun leggja fyrir íslensk stjórnvöld innan skamms.

Ábendingar - SRFF

Veik og þreytt dag eftir dag

Fjölsótt málþing um langvinn veikindi kvenna var haldið í mars 2026 í samstarfi við siðfræðistofnun Háskóla Íslands, auk sjö sjúklingafélaga. Á málþinginu var sjónum beint að langvinnum veikindum kvenna, brotalömum í heilbrigðisþjónustu og kröfum um úrbætur þar sem kyn, fötlun og sjúkdómar skarast.

Notendaráð – reynslan við borðið

ÖBÍ hélt upplýsingafundi með notendaráðum og lagði áherslu á að reynsla notenda mótaði stefnu og þjónustu. Virkt samráð er forsenda þjónustu sem mætir raunverulegum þörfum. Starfsfólk ÖBÍ ferðaðist um landið og hélt fundi bæði með notendaráðum og sveitarstjórnarfólki.

Kvennaárið – jafnrétti sem nær til allra

ÖBÍ tók þátt í Kvennaárinu 2025 og kvennaverkfallinu 24. október og minnti á að jafnrétti nær ekki markmiði sínu nema það taki líka til kvenna og kvára sem mæta fötlun, aðgengishindrunum, fátækt og ofbeldi.

Kvennahreyfing ÖBÍ var með stoppistöð í sögugöngu Kvennaárs, þar sem gestum gafst kostur á að fræðast um réttindabaráttu fatlaðra kvenna og koma á framfæri skilaboðum til stjórnvalda.

Nýsköpun sem eykur sjálfstæði

Heimsókn starfsfólks skrifstofu ÖBÍ í FabLab Vestmannaeyjum kveikti hugmynd að sköpunarrými með áherslu á aðgengi, sérsniðin hjálpartæki og tæknilausnir sem bæta daglegt líf fatlaðs fólks.

ÖBÍ, Örtækni og FabLab Vestmannaeyjar hófu á starfsárinu uppbyggingu FabLab í Hátúni 10C fyrir frumgerðasmíði, tækniþróun og skapandi verkefni.

Þriggja ára samstarfssamningur var undirritaður við Nýmennt vegna Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Í honum felst meðal annars stofnun sérstaks Mannréttindaflokks við keppnina til að hvetja börn til inngildandi hönnunar. Leggur ÖBÍ til 300.000 krónur í verðlaunafé á samningstímabilinu, auk 700.000 kr. framlags til að bæta aðgengi að keppninni.

Markmið samstarfsins er að auka vitund grunnskólabarna um málefni fatlaðs fólks og raunveruleika þess, jafnframt því að hvetja börn og ungmenni til nýsköpunar sem tengist áskorunum og tækifærum í lífi fatlaðs fólks. Sérstök áhersla er lögð á inngildandi hönnun, aðgengi og lausnir sem stuðla að samfélagslegri þátttöku og valdeflingu fatlaðs fólks, bæði í leik og starfi.

Aukin tækifæri til útivistar og hreyfingar

Á starfsárinu var undirritaður tveggja ára samstarfssamningur við Frístundasafnið, en tilgangur safnsins er að auka jöfnuð og efla tækifæri og getu fatlaðs fólks til þess að leggja stund á útivist og hreyfingu. Frístundasafnið mun bjóða upp á fjölbreyttan frístunda- og útivistarbúnað fyrir fatlað fólk. ÖBÍ hefur komið að undirbúningi verkefnisins frá upphafi með fjármagni og vinnuframlagi. Markmið samstarfsins er að tryggja framgang verkefnisins, sýnileika og að það nái til þeirra sem geta nýtt það.

Listir og menning fyrir öll

Haustið 2025 gerði ÖBÍ þriggja ára samstarfssamning við List án landamæra. Samstarfið miðar að því að efla enn frekar sýnileika og þátttöku fatlaðs listafólks í íslensku menningarlífi sem og að tryggja aðgengi ólíkra hópa að viðburðum hátíðarinnar.

Markmiðið er að stuðla að jöfnum tækifærum fyrir öll til þátttöku í listsköpun, óháð fötlun og tryggja að rödd fatlaðs listafólks heyrist og fái verðskuldaða athygli og rými í samfélaginu. Samstarfið felur í sér sameiginlega vinnu að auknu aðgengi, með áherslu á samráð, sýnileika og sértækan stuðning.

List án landamæra

Allir með í íþróttum

Þriggja ára samstarfssamningur var gerður í nóvember 2025 við Íþróttasamband fatlaðra um stuðning ÖBÍ við þróunarsvið ÍF og verkefnið Allir með, en það er þróunarverkefni sem miðar að því að efla tækifæri fatlaðra barna og ungmenna til þátttöku í íþróttastarfi.

Með samningnum styrkir ÖBÍ þróun og uppbyggingu verkefnisins á næstu árum í nánu samstarfi við ÍF og aðra hagsmunaaðila. Málefnahópur ÖBÍ um málefni barna átti aðkomu að fyrstu skrefum verkefnisins þegar leitað var eftir sögum og reynslu foreldra fatlaðra barna af íþróttastarfi.

Mannréttindahúsið stækkar

Ný álma Mannréttindahússins að Sigtúni 42 var tekin í notkun á starfsárinu. Fjórtán ný félög fluttu inn og eru nú yfir 40 félög með aðsetur í húsinu. Nýju félögin eru Almannaheill, ADHD samtökin, Auðlesið mál, Átak, Barnaheill, Börn með krabbamein, CP félagið, EAPN á Íslandi, Íslensk ættleiðing, Neistinn, PCOS samtök Íslands, Sjónarhóll, TMF og Umhyggja.

Frá opnun Mannréttindahússins árið 2023 hefur það þróast í öfluga miðstöð samtaka sem vinna að mannréttindum, félagslegri þátttöku og bættum lífsgæðum. Í húsinu deila félög reynslu, þekkingu og aðstöðu, styðja hvert annað og eiga samstarf um verkefni sem ná þvert á ólík málefnasvið. Stækkunin skapar meira rými fyrir starfsemi félaganna og fjölgar tækifærum til sameiginlegrar hagsmunagæslu.

Mannréttindahúsið hýsti jafnframt fjölbreytta fundi, námskeið, ráðgjöf og opna viðburði á starfsárinu. Þar á meðal voru Mannréttindamorgnar og Morgunbollinn, þar sem fjallað var um langvarandi veikindi og mannréttindi, hatursorðræðu, gervigreind, lífeyrismál, aðgengi og starf aðildarfélaga svo fátt eitt sé nefnt. Með stækkuninni styrkist hlutverk hússins sem sameiginlegs heimilis mannréttindabaráttu og möguleikar til samstarfs þvert á félög aukast.

Upplýsingagjöf

ÖBÍ birti fréttir, umsagnir, myndbönd, upptökur og upplýsingar um verkefni jafnt á obi.is sem samfélagsmiðlum sínum. Miðlunin gerði réttindamál sýnilegri og aðgengilegri almenningi, aðildarfélögum, stjórnvöldum og fjölmiðlum.

Á tímabilinu skýrði ÖBÍ meðal annars lögfestingu samningsins, vakti athygli á fátækt og biðlistum og hóf hlaðvarpið Gildruna.

Samfélagsmiðlar ÖBÍ héldu áfram að vaxa og dafna á starfsárinu. Fylgjendur á TikTok eru meira en tvöfalt fleiri en fyrir ári, á Instagram fór fjöldinn í fyrsta sinn yfir 1.000 og á Facebook yfir 10.000. Færslur ÖBÍ á Facebook náðu til samtals 239.000 manns.

Ráðgjöf og þjónusta

Lögfræðingar og ráðgjafar ÖBÍ veita fötluðu fólki gjaldfrjálsa ráðgjöf. Boðið er upp á símaráðgjöf á fimmtudögum, bókuð viðtöl og svör við erindum sem berast á radgjof@obi.is.

Ástæðurnar að baki málunum í grunninn eru þær sömu og fyrri ár: Réttindi fólks til framfærslu eru brotin sem og önnur mannréttindi eða þá ekki virt af stjórnsýslunni í heild: ríki, sveitarfélögum og stofnunum.

Í apríl 2024 voru samþykktar á Alþingi breytingar á bæði greiðslu- og matskerfi fyrir örorku, sem tóku gildi 1. september 2025 ásamt nýjum sjúkra- og endurhæfingargreiðslum í stað endurhæfingarlífeyris. Fjölmargir hafa haft samband við ráðgjafa ÖBÍ með spurningar er tengjast breyttu örorkukerfi og ráðgjafar ÖBÍ hafa aflað upplýsinga um ýmis atriði varðandi breytingarnar og komið þeim á framfæri. Ábendingarnar snúa nær allar að breytingum á matskerfinu og afgreiðslu umsókna. Með sjúkra- og endurhæfingargreiðslum kom inn sú jákvæða breyting að umsækjendur sem ekki bíða eftir meðferð eða endurhæfingu og/eða geta ekki sinnt endurhæfingu vegna heilsubrests geta fengið sjúkragreiðslur. Mikil áhersla er lögð á sjúkra- og endurhæfingargreiðslur og að lengja það tímabil sem þær eru greiddar áður en kemur að mati á örorku.

Helsti vandinn hefur verið langur afgreiðslutími, synjanir, skortur á viðeigandi endurhæfingu og óljósar forsendur ákvarðana. Sérstaklega komu upp mál þar sem fötluðum nemendum var synjað um greiðslur vegna námsálags og mál fólks með örorkumat frá fyrra búsetulandi. Í öðru tveggja kærumála af síðarnefnda taginu var ákvörðun Tryggingastofnunar felld úr gildi.

Óvissa skapaðist um samspil greiðslna frá Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum. Bráðabirgðaákvæði sem á að koma í veg fyrir neikvæða víxlverkun kerfanna var framlengt til 31. desember 2026, en áhrifin á fólk sem fær greiðslur úr báðum kerfum eru enn ekki að fullu ljós.

Hærri greiðslur frá almannatryggingum leiddu í sumum tilvikum til lægri stuðnings annars staðar, einkum sérstaks húsnæðisstuðnings, þar sem tekjuviðmið sveitarfélaga fylgdu ekki breytingunum.

Ráðgjafar sinntu einnig mörgum málum um húsnæðisleysi, bið eftir búsetuúrræðum, NPA, hjálpartæki, heima- og stuðningsþjónustu, heimahjúkrun, akstursþjónustu og stuðning við fötluð börn í skólum. Fólk á húsnæðisbiðlistum fékk oft ekki upplýsingar um stöðu sína þrátt fyrir skyldu sveitarfélaga til upplýsingagjafar.

Eftir lögfestingu samningsins leitaði fólk einnig skýringa á áhrifum hans. Ráðgjafar áttu reglulegt samtal við réttindagæslu fatlaðs fólks hjá Mannréttindastofnun Íslands og miðluðu reynslu af stöðu réttinda.

Þekking tengd þátttöku ráðgjafa í samstarfshópum, meðal annars um réttindi barna, innflytjendur, fatlaða fanga, máltækni og leiðir út úr afbrotum, nýttist beint í ráðgjöfinni.

Fjárfest í réttindum og tækifærum

ÖBÍ veitir árlega styrki til náms, verkefna og aðildarfélaga sem styðja við réttindabaráttu, þekkingu, atvinnu og þátttöku fatlaðs fólks.

Námsstyrkir sem opna leiðir

ÖBÍ veitir fötluðu fólki námsstyrki með það að markmiði að styðja örorkulífeyristaka og fólk á sjúkra- og endurhæfingargreiðslum til formlegs náms sem getur aukið möguleika til atvinnu, sjálfstæðis og þátttöku.

Auglýst er eftir umsóknum um námsstyrki á heimasíðu ÖBÍ og á samfélagsmiðlum og fer úthlutun fram að hausti. Er styrkjunum ætlað að koma til móts við námskostnað, svo sem skráningar- og þátttökugjöld. Aðeins er styrkt til eins námskeiðs, annar eða námsárs í senn. Umsækjendum er frjálst að sækja um oftar en einu sinni haldi þeir námi áfram, að því tilskyldu að um framvindu sé að ræða. Styrkupphæðir eru ákvarðaðar í hvert sinn í samræmi við umsóknir og fjárheimildir.

Verkefnastyrkir sem efla baráttuna

ÖBÍ réttindasamtök veita árlega styrki í verkefni sem tengjast hagsmunum fatlaðs fólks og eru í samræmi við markmið og stefnu samtakanna. ÖBÍ úthlutaði 57 milljónum króna í styrki til samtals 55 verkefna á starfsárinu. Alls sóttu 86 um verkefnastyrk og var því meiri en helmingur umsækjenda styrktur.

57

milljónir

Öflugri aðildarfélög

ÖBÍ veitir aðildarfélögum sínum rekstrarstyrki árlega að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Styrkirnir eru ætlaðir til stuðnings við reglulega starfsemi og rekstur félaganna. Alls sóttu 30 félög um styrki árið 2026 og nam heildarúthlutun um 163 milljónum króna.

163

milljónir

Innra starf

Vinnustaðurinn ÖBÍ

Öflugt fólk í innra og ytra starfi ÖBÍ er lykillinn að árangri og er markvisst unnið að því að viðhalda kraftmiklu og faglegu samfélagi innan samtakanna. Skrifstofa ÖBÍ er vel skipuð og liðsheildin sterk. Umfang starfsemi ÖBÍ hefur vaxið á undanförnum árum, þó hefur stöðugildum ekki fjölgað í raun. Með sterkri liðsheild, skýru verklagi og sameiginlegri sýn hefur skapast mikilvægur grunnur fyrir réttindabaráttuna, þjónustu við aðildarfélögin og áframhaldandi uppbyggingu ÖBÍ sem leiðandi mannréttindasamtaka á Íslandi.

Mannauðsstefna ÖBÍ styður við gott vinnuumhverfi þar sem virðing, jafnrétti og góð samskipti eru í forgrunni. Reglulegir starfsmannafundir, starfsmannasamtöl, fræðsla og samtal um verkefni og forgangsröðun styrkja liðsheildina og bæta verklag. Þá hafa verið teknar í notkun valdar gervigreindarlausnir til að auðvelda og auka gæði vinnu og hefur verið sett sérstök stefna um notkun þeirra.

Aðalfundur

Aðalfundur ÖBÍ var haldinn 3. og 4. október 2025 á Grand Hótel Reykjavík. Alma Ýr Ingólfsdóttir var endurkjörin formaður og þrjú ný aðildarfélög, Átak, HD samtökin og PCOS samtök Íslands, bættust í hópinn. Aðildarfélög ÖBÍ urðu þar með 43 talsins og hafa aldrei verið fleiri.

Fundurinn lagði meðal annars áherslu á innleiðingu samningsins, kjaramál, húsnæði og ábyrgð stjórnvalda á réttindum fatlaðs fólks.

Formannafundir

Tveir formannafundir voru haldnir á tímabilinu, í september 2025 og janúar 2026. Formannafundir eru vettvangur aðildarfélaga til samráðs, stefnumótunar og upplýsinga. Fundur septembermánaðar snerist einkum um EKKO-fræðslu og fræðslustarf ÖBÍ og í janúar voru meðal annars kosningar og innleiðing SRFF til umræðu.

Aðildin endurskoðuð

Vinnuhópur sem stjórn ÖBÍ skipaði eftir aðalfund 2024 vann tillögur að endurskoðun aðildarákvæða laga ÖBÍ. Aðildarfélög tóku þátt í vinnustofum 25. október 2025 og á stefnuþingi 17. apríl 2026 þar sem fengnar voru skoðanir aðildarfélaga á breytingum á formi aðildar. Að stefnuþingi loknu fól stjórn laganefnd að móta tillögur fyrir næsta aðalfund.

Fræðsla sem nýtist

ÖBÍ rekur öflugt fræðslustarf með það að markmiði að styrkja faglegt starf og réttindabaráttuna í heild. Á starfsárinu var fræðslustarfið fjölbreytt og var áherslan á hagnýta þekkingu sem styður aðildarfélögin í daglegu starfi, eflir málefnastarf þeirra og styrkir fólk til þátttöku í réttindabaráttu fatlaðs fólks.

Helstu stoðir fræðslustarfsins voru Fræðsluröð ÖBÍ, Námsstefna ÖBÍ, viðburðir tengdir málefnahópum og UngÖBÍ, auk Morgunbollans og annarra viðburða í Mannréttindahúsinu.

Fræðsluröð ÖBÍ

Markmiðið með Fræðsluröð ÖBÍ er að bjóða upp á fræðslu sem nýtist félögunum beint í rekstri, hagsmunagæslu, samskiptum, miðlun og innra starfi. Um hagnýt tveggja til þriggja klukkustunda löng námskeið er að ræða og voru sex námskeið haldin á starfsárinu, þau voru:

Fjárlagafrumvarpið krufið - 24. september 2025

Leiðbeinandi: Oddný G. Harðardóttir.

Tækifæri í atvinnuleit - 22. október 2025

Fjáröflun og fjármögnun félaga - 21. janúar 2026

Leiðbeinendur: Sérfræðingar frá Takk; Andri Árnason, Kristín Jezorski og Flóki Guðmundsson. 

Gervigreind og starf félagasamtaka - 11. mars 2026

Leiðbeinandi: Sverrir Heiðar Davíðsson.

Hvernig geta öryrkjar verið sjálfstætt starfandi - 19. mars 2026

– í samstarfi við kjarahóp ÖBÍ.

Leiðbeinandi: Jón Arnar Baldurs.

Jákvæð vinnustaðamenning og fagleg samskipti - 7. maí 2026

Leiðbeinendur: Sérfræðingar frá AUKI; Guðrún Jóhanna  Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir.

Námsstefna ÖBÍ – 23. og 30. október

Námsstefna ÖBÍ var haldin í kjölfar aðalfundar eins og fyrri ár. Hún er lykilviðburður í fræðslustarfi samtakanna og er ætlað að ýta undir valdeflingu og þátttöku. Hana sækja fulltrúar í innra og ytra starfi ÖBÍ, fulltrúar í stjórn, varastjórn, málefnahópum, nefndum og ráðum, nýir forsvarsmenn aðildarfélaga og starfsfólk.

Námsstefnan fór fram yfir tvö síðdegi og var áhersla lögð á að stilla saman strengi fyrir vetrarstarfið. Fyrri dagurinn, Nýliðadagurinn, var sérstaklega ætlaður nýliðum þar sem farið var yfir stefnu, hlutverk og starfsemi ÖBÍ, siða- og EKKO-reglur og fleira. Á seinni deginum var meðal annars fjallað um SRFF, gervigreind, hagsmunagæslu, samskipti og liðsheild, auk þess var nokkuð um borðavinnu.

Erlent samstarf

Erlent samstarf hefur tvíþætt gildi. Það styrkir hagsmunagæslu hér heima með alþjóðlegum samanburði og veitir íslenskri hreyfingu tækifæri til að hafa áhrif á alþjóðlega stefnumótun.

Erlent samstarf birtist með ýmsum hætti á starfsárinu. Í september 2025 kynntu ÖBÍ, Þroskahjálp, Geðhjálp og Umhyggja áherslur fyrir sérfræðinefnd Sameinuðu þjóðanna og bentu á verulega annmarka á því hvernig mannréttindi fatlaðs fólks eru tryggð hér á landi. Sú vinna tengdist beint eftirfylgni SRFF og mikilvægi alþjóðlegra mannréttindaskuldbindinga.

ÖBÍ tekur þátt í Rådet för nordiskt samarbete om funktionshinder (RNSF), sem er ráðgefandi og stefnumarkandi ráð varðandi málefni fatlaðs fólks fyrir Norrænu ráðherranefndina og samstarfsaðila hennar. Í ráðinu sitja fulltrúar fötlunarsamtaka frá öllum Norðurlöndunum ásamt starfsfólki ráðuneyta. Fundirnir eru haldnir tvisvar sinnum á ári og er ætlað að upplýsa hvað ber hæst í hverju landi og sótti formaður ÖBÍ fundi bæði í Svíþjóð og í Danmörku síðasta árið.

Þá tekur ÖBÍ þátt í fundum heildarsamtaka fatlaðs fólks á Norðurlöndum, Handikapporganisationernas nordiska råd (HNR) sem haldnir eru tvisvar sinnum ári. Tíðkast hefur að halda fyrri fundinn í aðdraganda eða kjölfar fundar RNSF og seinni fundurinn er rafrænn. Fundirnir eru bæði upplýsandi og gefandi og gott að geta speglað þau mál sem ÖBÍ vinnur að hverju sinni. Þá er mikilvægt að tengjast fólki og félögum sem vinna að sömu hagsmunum.

Þá sendu samtökin umsagnir um þátttöku Íslands í samstarfsáætlunum Evrópusambandsins 2028-2034 og fjölluðu um alþjóðleg mannúðar- og mannréttindamál, meðal annars stöðu fatlaðra barna á Gaza.

Formaður ÖBÍ og formaður UngÖBÍ var hluti af sendinefnd Íslands á aðildarríkjaþinginu um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem haldið var í New York í júní og flutti Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra ávarp Íslands á þinginu.

Í sendinefndinni voru að auki Hreiðar Ingi Eðvarðsson, aðstoðarmaður ráðherra og Guðmundur Ármann Pétursson, formaður Þroskahjálpar.

Fjármál

Fjárhagur ÖBÍ réttindasamtaka var áfram sterkur á árinu 2025 og gekk reksturinn vel. Samtökin hafa lagt áherslu á ábyrga fjármálastjórn, hagkvæmni í rekstri og skýra forgangsröðun fjármuna í þágu fatlaðs fólks. Á sama tíma hefur starfsemi ÖBÍ vaxið og verkefnum fjölgað, meðal annars vegna aukins samráðs, öflugrar hagsmunagæslu, fjölbreytts fræðslu- og viðburðahalds, áherslu á samstarfsverkefni og aukins stuðnings við aðildarfélög.

Samkvæmt ársreikningi ÖBÍ fyrir árið 2025 var rekstrarafkoma ársins jákvæð um 246 milljónir króna. Heildareignir samtakanna námu 1.969 milljónum króna í árslok og eigið fé var 1.736 milljónir króna. Eiginfjárstaðan er því traust, skuldahlutfall lágt og lausafjárstaðan góð. Þessi staða veitir ÖBÍ mikilvægt svigrúm til að takast á við óvæntar aðstæður.

Góð fjárhagsstaða er mikilvæg forsenda þess að ÖBÍ geti sinnt hlutverki sínu af krafti, brugðist við nýjum áskorunum og stutt við réttindabaráttu, þjónustuþróun og samstarfsverkefni til framtíðar.

Tekjur ÖBÍ komu sem fyrr að langstærstum hluta frá Íslenskri getspá, en samtökin eiga 40% hlut í fyrirtækinu. Framlög frá Íslenskri getspá námu 1.373 milljónum króna á árinu 2025 og jukust milli ára. Vegna eðlis starfseminnar fylgir ákveðin óvissa tekjuflæðinu og er farið varlega í fjárhagsáætlanagerð.

Á árinu veitti ÖBÍ, auk eigin fyrirtækja og aðildarfélaga, fjölmörgum samtökum, verkefnum og einstaklingum styrki að fjárhæð alls 753 milljónum króna.

Fjármunirnir runnu meðal annars til húsnæðis- og þjónustulausna, rannsókna, réttindabaráttu, náms, velferðar og verkefna sem stuðla að aukinni þátttöku og bættri stöðu fatlaðs fólks. Þá lagði ÖBÍ fram 140 milljónir króna í stofnfé til Hringsjár endurhæfingar og lagði í Skjöld, samstarfsverkefni ÖBÍ, Brynju leigufélags og Hringsjár, rúmlega 196 milljónir króna til kaupa á íbúðum fyrir notendur Hringsjár. Var það gert í í formi framlaga til Brynju leigufélags.

Aðrar tekjur ÖBÍ komu í gegnum samstarfsverkefni og leigutekjur af Sigtúni 42. Leigutekjur námu um 31 milljón króna á árinu og hafa hækkað í takt við vísitölu neysluverðs.

Í byrjun árs 2026 festi ÖBÍ kaup á hlut Brúar lífeyrissjóðs í Sigtúni 42 fyrir 310 milljónir króna og eignaðist þar með alla fasteignina. Gerðar voru nauðsynlegar breytingar á húsnæðinu og það tekið í notkun 1. júlí 2026. Þá hófust á vormánuðum framkvæmdir vegna nýs sorps- og hjólaskýlis. Á seinni hluta ársins 2025 var unnið að endurbótum í Sigtúni 42, meðal annars í kjallara hússins, viðgerðum eftir vatnstjón og frekari eflingu brunavarna.

Góð eiginfjár- og lausafjárstaða, traustur varasjóður og jákvæð rekstrarafkoma skapa grundvöll fyrir áframhaldandi öflugt starf í þágu fatlaðs fólks.

Skýrslur málefnahópa

Innan ÖBÍ starfa málefnahópar sem fjalla um aðgengismál, atvinnu- og menntamál, heilbrigðismál, húsnæðismál, kjaramál og málefni barna auk ungliðahreyfingarinnar UngÖBÍ.

Málefnahóparnir koma að ritun umsagna ásamt starfsmönnum ÖBÍ og annast fjölbreytt verkefni, hver á sínu sviði. Hóparnir héldu viðburði á starfsárinu og sinntu samhliða því öðrum mikilvægum verkum.

Aðgengishópur

Aðgengishópur lagði megináherslu á samgöngur, mannvirki, stæðiskort og leiðbeiningar um algilda hönnun. Hópurinn krafðist meðal annars lausnar vegna rangrar gjaldtöku stæðiskorthafa í sjálfvirku myndavélaeftirliti og óskaði skýrra viðmiða um útgáfu stæðiskorta frá stjórnvöldum.

Viðmið um útgáfu stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða virðast ekki vera til en þau eru á ábyrgð embættis landlæknis. Óskað hefur verið eftir skýringum frá embættinu en formlegt erindi hefur einnig verið sent heilbrigðisráðuneytinu sem er með málið í skoðun auk þess sem þingmaður mun leggja fram fyrirspurn á Alþingi.

Almenningssamgöngur eiga að vera fyrir alla en oft eru farartæki og biðstöðvar því miður óaðgengileg. Sérstaklega var þrýst á úrbætur á flugrútunni og aðstöðu tengdri henni. Nú hafa tvær flugrútur með hjólastólaaðgengi verið teknar í notkun, sem er mikilvægt framfaraskref.

Leiðbeiningar um leiðarlínur og athyglissvæði voru unnar með Blindrafélaginu og óskað var eftir að þær yrðu felldar inn í byggingarreglugerð.

Hópurinn ráðlagði meðal annars Listahátíð í Reykjavík, Hinsegin dögum og Hörpu um aðgengi að viðburðum.

Stefnt er að því að halda tvö málþing með haustinu, annars vegar um húsnæðismál og aðgengi að eldra húsnæði með húsnæðishópi ÖBÍ og hins vegar um aðgengi að nýbyggingum. Mótun dagskrár stendur yfir.

Hópurinn tekur þátt í fræðilegri rannsókn sem styrkt er af Aski – mannvirkjarannsóknasjóði um mat á innleiðingu algildrar hönnunar í nýbyggðum fjölbýlishúsum. Gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsóknarinnar verði kynntar á árinu.

Formaður: Jón Gunnar Benjamínsson.
Starfsmaður: Stefán Vilbergsson.

Atvinnu – og menntahópur

Atvinnu- og menntahópur ÖBÍ fjallaði einkum um áhrif breytinga á almannatryggingakerfinu á atvinnuþátttöku, meðal annars starfsgetumat og frítekjumörk. Hópurinn lagði áherslu á að kerfið hvetji til atvinnuþátttöku án þess að fólk óttist að missa réttindi eða fjárhagslegt öryggi. Einnig var rætt um þörf fyrir fjölbreyttari hlutastörf og raunveruleg tækifæri til að nýta menntun, reynslu og hæfni.

Hópurinn fylgdist með verkefni Unndísar og veitti umsagnir um fræðsluefni þess. Á menntasviðinu var lögð áhersla á að skortur á aðgengi, stuðningi og viðeigandi aðlögun takmarki enn námsval fatlaðs fólks, sérstaklega þeirra sem hafa miklar stuðningsþarfir. Hópurinn vann jafnframt að undirbúningi málþings um stöðu framhaldsskólanema þegar þeir verða 18 ára og mikilvægi samfellu í þjónustu og stuðningi.

Formaður hópsins skrifaði greinar um atvinnu- og menntamál, hélt erindi um áhrif langvinnra veikinda kvenna á atvinnuþátttöku og tók þátt í útvarpsviðtali um atvinnuþátttöku og aðgengi að námi. Hópurinn hélt einnig, í samstarfi við kjarahóp ÖBÍ, námskeið um sjálfstæðan atvinnurekstur öryrkja.

Áfram verður lögð áhersla á aukinn sveigjanleika, viðeigandi aðlögun og raunverulegt val fatlaðs fólks til náms og starfa.

Formaður: Hrönn Stefánsdóttir.
Starfsmaður: Sunna Elvira Þorkelsdóttir.

Barnamálahópur

Meðal þeirra mála sem barnamálahópurinn hefur unnið að á starfsárinu eru málefni tengd farsældarlöggjöfinni og framkvæmd hennar, miðlægum gagnagrunni um nemendur í skólakerfinu og fyrirhuguðum breytingum á einkunnakerfi skóla. Hópurinn hefur komið að umsögnum vegna þessara mála og fylgst með umræðu og vinnu á vettvangi Alþingis, meðal annars hjá allsherjar- og menntamálanefnd.

Á starfsárinu var jafnframt unnið með Barna- og fjölskyldustofu að málefnum farsældarlöggjafarinnar og sérstaklega horft til upplifunar foreldra af framkvæmd hennar. Haldinn var fundur með foreldrum þar sem reynsla þeirra og sjónarmið voru rædd.

Málefnahópurinn tók einnig þátt í verkefninu „Allir með“. Formaður Málefnahóps barna hélt í kjölfarið erindi á fyrsta fræðslukvöldi verkefnisins í Gerplu, Kópavogi.

Fræðslustarf tengt barnabókinni um PóGó hélt jafnframt áfram á starfsárinu. Bergrún Íris Sævarsdóttir, höfundur bókarinnar, hefur kynnt hana í skólum landsins og þannig haldið áfram þeirri vinnu hópsins að auka fræðslu, sýnileika og skilning á málefnum fatlaðra barna innan skólasamfélagsins.

Málefnahópur barna hefur þannig komið að fjölbreyttum verkefnum á starfsárinu, allt frá umsögnum og réttindagæslu til fræðslu og samstarfsverkefna. Reglulegir fundir hópsins hafa skapað vettvang fyrir umræðu um þau fjölmörgu málefni sem varða börn innan ÖBÍ og verður áfram unnið að því að fylgja þeim eftir.

Formaður: Sindri Viborg.
Starfsmaður: Andrea Valgeirsdóttir.

Heilbrigðishópur

Heilbrigðishópur vann meðal annars að greiðsluþátttöku og aðgengi að heilbrigðisþjónustu, langvinnum veikindum kvenna, heyrnarþjónustu, geðheilbrigði og hjálpartækjum.

Á alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum 10. október 2025 flutti formaður hópsins erindi á málþinginu Gulur september og birti grein um geðheilbrigði.

Eftir áramót færðist áherslan yfir á aðgengi að heilbrigðisþjónustunni. Í febrúar hélt heilbrigðishópurinn málþing sem fjallaði um lífskjör og aðgengi að heilbrigðisþjónustunni. Þar voru kynntar niðurstöður rannsóknar á stöðu fatlaðs fólks innan greiðsluþátttökukerfisins og var niðurstaðan að fatlað fólk og öryrkjar þurfa að greiða meir fyrir heilbrigðisþjónustu en aðrir og fresta í meira mæli að sækja sér heilbrigðisþjónustu m.a. vegna kostnaðar.

Á alþjóðlegum degi heyrnar vakti ÖBÍ athygli á heyrnarskertum börnum og styrkti kaup á fyrsta heyrnarskimunartæki Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands.

Í mars vakti hópurinn athygli á aðgengi að leghálsskimunum fyrir hreyfihamlaðar konur og hélt vel sótt málþing með Siðfræðistofnun Háskóla Íslands um langvinn veikindi kvenna.

Hópurinn kallaði eftir þjónustu- og þekkingarmiðstöð um einhverfu og ályktaði um hækkandi heilbrigðiskostnað öryrkja og ójöfnuð í þjónustu.

Í júní leiddi Heilbrigðishópurinn samstarf við Læknafélag Íslands, Lyfjafræðingafélag Íslands og tvo geðlækna þar sem breytingar á greiðsluþátttöku lyfja var mótmælt með bréfi til heilbrigðisráðuneytisins.

Auk þess skrifaði hópurinn greinar og umsagnir og átti samráð við notendaráð um hjálpartækjalöggjöf.

Formaður: Telma Sigtryggsdóttir.
Starfsmaður: Gunnar Alexander Ólafsson.

Húsnæðishópur

Málefnahópur um húsnæðismál vann að rannsóknum, réttindabaráttu og upplýsingamiðlun á starfsárinu og fékk til sín nokkra gesti, bæði frá óháðum félagasamtökum og háskólasamfélaginu með það að markmiði að byggja brýr svo gagnaöflun haldist sem best. Í lok seinasta starfsárs samþykkti hópurinn að kanna grundvöll og undirbúa framkvæmd á nýrri rannsókn um húsnæðismál fatlaðs fólks. Fyrri rannsókn hópsins var gefin út árið 2022 og mikilvægt að safna saman nýjum upplýsingum um stöðuna í dag til samanburðar.

ÖBÍ og Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerðu verksamning um rannsóknina í desember 2025. Hún á að uppfæra samanburðarhæf gögn frá 2022 og skoða sérstaklega stöðu heimilislauss fatlaðs fólks. Niðurstöður eru væntanlegar um næstu áramót.

Hópurinn tók einnig þátt í EXIT, samráðsvettvangi um leiðir út úr afbrotum, með áherslu á húsnæði og endurhæfingu fatlaðs fólks sem snýr aftur út í samfélagið eftir afplánun.

Hópurinn vann jafnframt að málum tengdum aðlögunar- og aðgengissjóði og undirbjó málþing um húsnæði og aðgengi.

Formaður: María Pétursdóttir.
Starfsmaður: Kjartan Þór Ingason.

Kjarahópur

Kjarahópurinn í samvinnu við EAPN (European Anti Poverty Network) á Íslandi stóð að viðburði tengdum alþjóðlegum baráttudegi gegn fátækt 17. október undir yfirskriftinni „Upprætum fátækt“. Í framhaldinu var farið yfir skilaboð frá fólkinu sem kom á viðburðinn, þau tekin saman og afhent fulltrúum ráðuneytanna. Örsögur sem kjarahópurinn og EAPN höfðu tekið saman voru lesnar upp á viðburðinum auk þess sem hægt var að hlusta á upplestur þeirra í Fátæktargildrunni, gjörningi á vegum ÖBÍ í Smáralind í október. Að auki skrifuðu meðlimir kjarahópsins greinar í tilefni dagsins.

Hópurinn hóf einnig hugmyndavinnu að hlaðvarpsþáttum í samstarfi við EAPN og var fyrsti þátturinn tekinn upp 9. apríl. Þrír fyrstu þættirnir voru sendir út sumarið 2026.

Kjarahópurinn stóð fyrir námskeiði 12. febrúar í samstarfi við málefnahóp um atvinnu- og menntamál námskeiðið: „Hvernig geta öryrkjar verið sjálfstætt starfandi? Námskeið um eigin rekstur, skil á gjöldum og framtalsgerð.“ Námskeiðið sem var haldið í annað sinn var mjög vel sótt og almenn ánægja með það.

Kjarahópurinn tók þátt í undirbúningi fyrir þátttöku ÖBÍ í 1. maí göngunni eins og fyrri ár. Yfirskrift forgönguborðans árið 2026 var „Tækifæri á vinnumarkaði-já takk“ og auk þess var gengið með fjölda kröfuspjalda með mismunandi slagorðum. Einnig var gjörningur vegna sveitarstjórnarkosninganna, Biðlistinn, til að vekja athygli á löngum biðlistum innan kerfisins. Vakti þessi gjörningur verðskuldaða athygli.

Kjarahópurinn ræddi þau frumvörp sem tengjast kjaramálum sem voru til umsagnar á Alþingi, þar á meðal fjárlagafrumvarp 2026. Eins tóku formaður og varaformaður þátt í verkefninu „Vinnustofa um fátækt barna“ á vegum stýrihóps sem stýrt var af Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur þingmanni.

Önnur mál kjarahópsins voru að hefja vinnu við gátlista um hvernig og hvert fólk getur leitað þegar það verður fyrir veikindum eða slysum. Nemi í félagsráðgjöf sem var í starfsþjálfun tók það verkefni upp á sína arma. Eins vann hópurinn samantekt um mýtur varðandi öryrkja.

Formaður: Geirdís Hanna Kristjánsdóttir.
Starfsmaður: Sigríður Hanna Ingólfsdóttir.

UngÖBÍ

UngÖBÍ stóð fyrir tveimur viðburðum á starfsárinu og skilaði umsögn um ungmennastefnu með tillögum að inngildingu ungs fatlaðs fólks. Aðgengisviðurkenningin Fjólublátt ljós við barinn var veitt í annað sinn í október. Viðurkenninguna hlýtur sá bar eða skemmtistaður sem hugar að aðgengismálum fyrir gesti sína. Í þetta sinn hlaut Einstök bar viðurkenninguna.

Í nóvember hélt UngÖBÍ námskeið um fyrstu skref á fasteignamarkaði fyrir ungt fatlað fólk. Björn Berg fór yfir ólíkar leiðir og helstu atriði við kaup á fyrstu fasteign.

Í mars bauð UngÖBÍ 20–35 ára fólki í pöbbkviss í Stúdentakjallaranum. Viðburðurinn sameinaði fötluð og ófötluð ungmenni í blönduðum liðum og studdi við félagslega þátttöku.

Í apríl hófst Erasmus samstarfsverkefnið Sports for Everyone. Markmið verkefnisins er að draga úr félagslegri einangrun ungs fatlaðs fólks og stuðla að þátttöku þeirra í samfélaginu í gegnum rafíþróttir. Til að að ná þeim markmiðum verður hannað þjálfunar- og fræðsluefni sem þjálfarar geta notað til að bæta móttöku og aðlögun rafíþróttastarfs fyrir ungt fatlað fólk. Þrír samstarfsaðilar vinna í verkefninu með UngÖBÍ. Þau eru Rafíþróttasamband Íslands, Rafíþróttasamband Finnlands og fræðslu- og inngildingarsamtökin Close in the Distance frá Ítalíu.

Alþjóðleg samvinna spilar mikilvægt hlutverk í starfsemi UngÖBÍ og eflir hreyfinguna með nýjum hugmyndum, samstarfsaðilum og stærri verkefnum. Starfsmaður UngÖBÍ sótti tvo tengslamyndunarviðburði á tímabilinu í boði Borgarasjóðs EES í Búdapest og Sofíu. Varaformaður UngÖBÍ sótti Esports Sustainability Summit í Espoo þar sem meðal annars var lögð áhersla á aðgengismál.

Þá sótti formaður fimm viðburði og hélt erindi fyrir hönd UngÖBÍ. Þeir viðburðir voru fundur velferðarnefndar Norðurlandaráðs, Nordic Youth Disability Summit og Norræna fötlunarráðsins í Stokkhólmi, Nordic Baltic Youth Summit í Helsinki, skipulagning vinnustofu á Nordic Youth Seminar í Kungalv í samstarfi við systurhreyfingar okkar á Norðurlöndum. Einnig Nordic Youth Disability Summit og fundur fötlunarráðsins í Musholm. Að lokum sótti formaður 19. þing aðildarríkja samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í New York þar sem hann tók þátt í pallborði á norrænum hliðarviðburði.

Formaður: Eiður Welding.
Starfsmaður: Kjartan Þór Ingason.

Fyrirtæki

ÖBÍ er einn eignaraðila Íslenskrar getspár, en samtökin eiga 40% í fyrirtækinu. Þá er ÖBÍ eigandi Örtækni ehf., stofnandi Brynju leigufélags ses. og Hringsjár endurhæfingar. Einnig eru samtökin aðili að Fjölmennt, símenntunar- og þekkingarmiðstöð og TMF. ÖBÍ skipar stjórnir fyrrnefndra aðila að hluta eða öllu leyti.

Þessir aðilar gegna mikilvægu hlutverki í því að styðja við markmið ÖBÍ um að öll, óháð líkamlegu og andlegu atgervi, njóti mannsæmandi lífskjara og jafnra möguleika til sjálfstæðs lífs og virkrar samfélagslegrar þátttöku. Starfsemin spannar afar vítt svið, má þar nefna húsnæðislausnir, náms-, starfs- og heilbrigðisendurhæfingu, tækniþjónustu og ráðgjöf, símenntun, inngildandi atvinnumöguleika og starfsþjálfun.

Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að því að styrkja faglegan, fjárhagslegan og rekstrarlegan grunn þessara aðila, meðal annars með breytingum á rekstrarformi, endurskoðun á fyrirkomulagi þjónustu, auknum stuðningi og nýjum samstarfsverkefnum.

Á starfsárinu var rekstrarformi Hringsjár breytt yfir í sjálfseignarstofnun með staðfesta skipulagsskrá. Með því er stefnt að því að skýra stöðu starfseminnar, styrkja rekstrargrunninn og skapa traustari umgjörð til framtíðar. Jafnframt var fasteignin að Hátúni 10D keypt af hinu opinbera, sem og lóðin undir henni af Brynju leigufélagi. Samhliða þessu hefur ÖBÍ stutt við verkefnið Skjöld, samstarfsverkefni ÖBÍ, Brynju og Hringsjár, sem miðar að því að auka húsnæðisöryggi notenda Hringsjár og skapa betri forsendur fyrir þátttöku þeirra í endurhæfingu, námi og samfélagi.

Mikilvæg breyting varð þegar Örtækni var breytt úr félagasamtökum í einkahlutafélag og tók nýtt rekstrarform gildi í ársbyrjun 2025. Breytingin er liður í því að skýra eignarhald, ábyrgð og rekstrarumgjörð fyrirtækisins og styðja við áframhaldandi uppbyggingu þess. Með nýju rekstrarformi skapast betri forsendur til að mæta breyttum þörfum og kröfum í atvinnu- og þjónustumálum fatlaðs fólks. Þá var settur upp vísir að FabLab smiðju á árinu, verkefnið er stutt af ÖBÍ og unnið í samstarfi við bandalagið og FabLab í Eyjum.

Brynja leigufélag er sjálfseignarstofnun í atvinnurekstri og gegnir lykilhlutverki í húsnæðismálum fatlaðs fólks. Hlutverk félagsins er að eiga og reka íbúðir fyrir fatlað fólk og stuðla þannig að húsnæðisöryggi, sjálfstæði og auknum lífsgæðum. ÖBÍ hefur stutt markvisst við Brynju með fjárframlögum og samningum til lengri tíma. Stuðningur ÖBÍ tekur mið af vísitöluþróun, fjárþörf og því mikilvæga hlutverki sem Brynja gegnir.

BRYNJA

Brynja, leigufélag sem á og rekur íbúðir fyrir fatlað fólk. Tilgangi sínum nær félagið með því að kaupa og byggja leiguíbúðir.

Tengill á brynjaleigufelag.is

Fjölmennt

Fjölmennt, símenntunar- og þekkingarmiðstöð sinnir námskeiðahaldi fyrir fatlað fólk og veitir ráðgjöf um nám við aðrar menntastofnanir.

Tengill á fjolmennt.is

Hringsjá

Náms- og starfsendurhæfing, er fyrir fólk sem hafa verið frá vinnumarkaði eða námi eftir veikindi, slys, félagslega erfiðleika eða önnur áföll.

Tengill á hringsja.is

ÖBÍ á 40% hlut í Íslenskri getspá sem skilað hefur samtökunum öruggum tekjum á undanförnum áratugum og skipt sköpum í rekstri þeirra.

Tengill á games.lotto.is/

TMF

TMF, tölvumiðstöð, sinnir ráðgjöf og námskeiðahaldi til einstaklinga og faghópa um tölvuforrit og sérhannaðan hugbúnað.

Tengill á tmf.is

Örtækni

Örtækni, tæknivinnustofa – ræsting veitir fötluðu fólki tímabundna starfsþjálfun og/eða vinnu til frambúðar.

Learn more

Lögð hefur verið áhersla á að fyrirtækin þróist í takt við breyttar þarfir fatlaðs fólks og auknar kröfur um sjálfbærni, fagmennsku og gagnsæi í rekstri. Þannig eru fyrirtækin ekki aðeins mikilvæg stoð, heldur einnig sjálfstæðir aðilar nýsköpunar og samfélagslegra lausna. ÖBÍ er stolt af fyrirtækjum sínum sem hvert um sig er í fararbroddi á sínu sviði. Starfsemi þeirra spannar afar vítt svið sem lesa má um í ársskýrslum þeirra.

Rekstrarreikningur

2025

2024

Rekstrartekjur

Framlag frá Íslenskri getspá 1.373.395.825  1.234.350.819
Leigutekjur 31.016.894  29.074.928
Aðrar tekjur 26.711.647 25.784.769
Tekjur samtals 1.431.124.366 1.289.210.516

Rekstrargjöld

Styrkir og framlög 752.617.020 621.726.727
Laun og launatengd gjöld 285.966.019 286.684.654
Hækkun lífeyrisskuldbindinga 12.971.884 9.027.504
Annar rekstrarkostnaður 187.166.252 166.277.436
Afskriftir 10.694.283 11.023.753
Gjöld samtals 1.249.415.458 1.094.740.074
Rekstrarafkoma (-tap) fyrir skatta 181.708.908 194.470.442

Fjármunatekjur og (-gjöld)

Vaxtatekjur og verðbætur 64.934.805 60.881.394
Vaxtagjöld, gengistap og verðbætur (270.880) (569.179)
246.372.834 254.782.657

Efnahagsreikningur

2025

2024

Fastafjármunir

Fasteign 515.857.074 526.384.769
Áhöld, búnaður og innréttingar 1.669.681 1.836.269
Stofnframlag 141.865.000 2.065.000
Bundnar innistæður – Arfur ÓGB 110.700.619 106.141.092
Bundnar innistæður – Varasjóður ÖBÍ 171.394.300 164.334.921
Fastafjármunir samtals 941.486.674 800.762.051

Veltufjármunir

Markaðsverðbréf 56.173.520 52.269.123
Aðrar skammtímakröfur 188.564.909 80.614.682
Eignarhlutur í öðrum félögum 500.000 500.000
Handbært fé 782.337.800 656.883.025
Veltufjármunir samtals 1.027.576.229 790.266.830
Eignir samtals 1.969.062.903 1.591.028.881

Eigið fé í árslok

Eigið fé 1.735.925.357 1.489.552.523
Skuldir 233.137.546 101.476.358
Eigið fé og skuldir 1.969.062.903 1.591.028.881

Ársskýrsla ÖBÍ er gefin út rafrænt. Heimilt er að afrita og nota efni hennar, sé heimildar getið. Ljósmyndirnar eru þó háðar höfundarrétti ljósmyndara og ÖBÍ réttindasamtaka.

Ruth Ásgeirsdóttir ljósmyndari tók allar ljósmyndirnar í ársskýrslunni nema eftirfarandi:
SILJA hjá Ljósmyndastofu Rutar og Silju tók ljósmyndir á aðalfundi ÖBÍ í október 2025.
Unnur Sesselía Ólafsdóttir hjá ÖBÍ tók myndir af flutningum í Mannréttindahúsinu.