Gervigreindarstefna ÖBÍ
ÖBÍ réttindasamtök nýta gervigreind á ábyrgan hátt í allri starfsemi sinni. Notkun gervigreindar skal styðja við hagsmunagæslu og réttindabaráttu í þágu fatlaðs fólks.
Stefnan á við um allar tegundir gervi og/eða spunagreindar. Hún gildir fyrir alla starfsemi ÖBÍ og þar með talið alla þá sem sinna verkefnum fyrir ÖBÍ.
Meginreglur
Mannréttindi í forgrunni
Gervigreind skal styðja við valdeflingu – ekki mismunun eða útilokun né stuðla að þöggun radda. Við erum meðvituð um hættuna á hinu síðarnefnda og forðumst hana með gagnrýnni hugsun og ábyrgri notkun gervigreindar.
Ábyrgð
Ákvarðanir sem hafa áhrif á fólk eða velferð þess eru teknar af fólki. Gervigreind má nota sem verkfæri en ekki til að taka ákvarðanir. Sem dæmi skulu ákvarðanir í ráðningarferli teknar af fólki. Tryggja skal að ef notast er við gervigreind á einhverju stigi í ráðningarferlinu leiði það ekki til mismununar, skekkju eða ósanngjarnrar meðferðar umsækjenda. Slík notkun skal vera gagnsæ, málefnaleg og í samræmi við gildandi lög, þar á meðal jafnréttis- og persónuverndarlöggjöf.
Gagnsæi og heiðarleiki
Þegar við á upplýsum við um hvenær og þá hvernig efni og greiningar eru unnar af gervigreind. Gervigreind er nýtt sem verkfæri til að styðja við sköpun en ekki sem höfundur. Huga þarf að því hvaða gervigreindarverkfæri eru notuð hverju sinni.
Persónuvernd
Við notkun gervigreindar fylgjum við lögum og reglum um persónuvernd ásamt persónuverndarstefnu ÖBÍ.
Jafnræði og varnir gegn bjögun (e. AI bias)
Við metum áhrif gervigreindar á mismunandi hópa og forðumst það sem getur valdið kerfisbundinni bjögun.* Með því að birta vandaðar upplýsingar um málefni og réttindi fatlaðs fólks stuðlum við að aðgengi gervigreindarlausna að efni sem vinnur gegn mismunun og bjögun.
Aðgengi
Við nýtum gervigreind til þess að auka aðgengi fatlaðs fólks. Þannig styðjum við notkun og þróun talgervla, talgreiningar og annarra gervigreindarlausna sem draga úr hindrunum.
Sjálfbærni
Notkun gervigreindar hefur áhrif á umhverfi og auðlindir og óábyrg notkun getur ýtt undir misskiptingu og fólksflutninga í heiminum. Við hvetjum til ábyrgrar notkunar og forðumst sóun.
Fræðsla
Við leitumst við að veita fræðslu um ábyrga notkun gervigreindar með réttindi fatlaðs fólks að leiðarljósi, þ.m.t. fyrir starfsfólk, aðildarfélög og samfélagið í heild.
Stefnan verður endurskoðuð reglulega í takt við þróun tækni, lagaumhverfis og hlutverks ÖBÍ. Stjórn ÖBÍ réttindasamtaka ber ábyrgð á að stefnunni sé fylgt eftir.
*Með bjögun eða gervigreindarbjögun er vísað til þess þegar gervigreindartól tekur ákvarðanir eða gefur niðurstöður sem eru skekktar, ósanngjarnar eða mismuna ákveðnum hópum fólks. Sem dæmi:
- Sýnir mismunun t.d. eftir kyni, aldri eða uppruna.
- Endurtekur fyrirfram gefnar staðalmyndir.
- Gefur ónákvæmar eða ósanngjarnar niðurstöður fyrir ákveðna hópa.

