
Pexels
ÖBÍ réttindasamtök fagna markmiðum frumvarpsdraga um breytingar á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. Meirihluti landsmanna hefur eða mun nýta sér einhverja velferðarþjónustu á lífsleiðinni. Sumir þurfa að reiða sig mikið eða alfarið á ákveðna velferðarþjónustu og hafa takmarkaða getu til að tilkynna um alvarleg atvik, t.d. vegna fötlunar. ÖBÍ telur því brýnt að Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) hafi öll bjargráð til að geta sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem er að leiða fram í rannsókn skýringar að baki alvarlegum óvæntum atvikum í þeim tilgangi að auka öryggi og gæði. ÖBÍ vill koma eftirfarandi ábendingum og athugasemdum á framfæri.
Skráningarskylda og aðhald
ÖBÍ fagna breytingum á 11. gr. laganna um að allir veitendur þeirrar þjónustu sem lýtur eftirliti GEV skulu skrá óvænt atvik sem eiga sér stað þegar þjónusta er veitt og skal skráningarskyldan vera hluti af innra eftirliti. Skýr atvikaskráning er mikilvægur liður í að tryggja innri og ytri eftirlitsaðilum aðgengi að tölfræðiupplýsingum um fjölda atvika þjónustuveitanda og upplýsingar um stöðu einstakra mála svo hægt verði að bregðast rétt við á réttum tíma. Hins vegar er hvergi að finna viðurlög við því ef þjónustuveitandi verður vís um að hunsa skráningarskyldu sína. ÖBÍ leggur til að GEV beri að kanna hvort ítrekað eða alvarlegt sinnuleysi þjónustuveitanda gagnvart skráningarskyldu gefi tilefni til að beita úrræðum skv. IV. kafla.
Alvarleg óvænt atvik og skýr viðmið
Að mati ÖBÍ eru breytingar á 12. gr. laganna um tilkynningarskyldu vegna alvarlegra óvæntra atvika jákvætt skref í rétta átt. Brýnt er að allar skilgreiningar um alvarleg óvænt atvik séu skýr svo allir þjónustuveitendur velferðarþjónustu rói í sömu átt og upplýsi GEV ef slík atvik koma upp. Í því ljósi leggur ÖBÍ til breytingu á fyrirhuguðu heimildarákvæði frumvarps draganna á þá leið að ráðherra verði falið að setja nánari ákvæði í reglugerð um alvarleg óvænt atvik, þ.m.t. um skilgreiningu á alvarleika atviks, tilkynningarskyldu alvarlegra óvæntra atvika, viðbrögð við tilkynningum, rannsókn mála og gerð skýrslu við lok rannsóknar.
Í 3. gr. frumvarps draganna kemur jafnframt fram að GEV beri að kanna hvort alvarlegt óvænt atvik gefi tilefni til að beita úrræðum skv. IV. kafla. ÖBÍ telur ákvæðið skýrt og að þörf sé á samskonar aðhaldi ef þjónustuaðili vanrækir tilkynningarskyldu sína. ÖBÍ leggur til að bætt verði við ákvæði þess eðlis að ef þjónustuveitandi tilkynnir ekki alvarlegt óvænt atvik án tafar beri GEV að kanna hvort það gefi tilefni til að beita úrræðum skv. IV.
Rannsóknir, frumkvæðisathuganir og eftirfylgni
ÖBÍ telur nýtt ákvæði sem felur í sér að telji GEV ekki tilefni til rannsóknar á alvarlegu óvæntu atviki skuli sú ákvörðun vera skrifleg og rökstudd vera góða viðbót fyrir gagnsæja stjórnsýslu. Brýnt er að tryggja að einstaklingar sem tilkynna slík atvik fái skýr svör um ákvörðun GEV og fái jafnframt tækifæri til að andmæla ákvörðuninni.
Skýrslur GEV vegna rannsóknar á alvarlegu óvæntu atviki eða vegna frumkvæðisathugunar er mikilvægur liður í að vinna gegn kerfislægum vanda og brotalöm og stuðla að trausti og öryggi í velferðarþjónustu. Því er brýnt að notendur þjónustunnar, aðstandendur og hagaðilar geti treyst því að þjónustuveitandi hefji strax vinnu á viðeigandi úrbótum í samræmi við tillögur í skýrslu GEV. Í 16. gr. núgildandi laga um GEV segir að ef tilefni er til skal stofnunin setja fram tilmæli um úrbætur sem gera verður innan ákveðins tíma. ÖBÍ leggur til að sett verði inn ákvæði um að þjónustuaðila beri að upplýsa GEV um framgang úrbóta innan ákveðins tíma. Jafnframt að GEV beri að sannreyna hvort úrbætur hafi átt sér stað.
ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.
Ekkert um okkur án okkar!
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ
Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (rannsókn alvarlegra óvæntra atvika)
Mál nr. S-26/2026. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 16. febrúar 2026

