
© Sjúkraflutningaskólinn
ÖBÍ réttindasamtök fagna drögum að aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana. ÖBÍ fagnar sérstaklega aðgerð 7.2 sem miða að því að þróa lausnir til að sinna bráðatilfellum sjúklinga með geðrænar og/eða vímuefnatengdar áskoranir, sem og aðgerð 7.5 um sjúkrabíl til sérhæfðra sjúkraflutninga.
ÖBÍ vilja þó koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum:
Aðgerð 2.2
Stafræn skráning í sjúkraflutningum
Auðvelda þarf miðlun upplýsinga varðandi sjúklinga milli kerfa, bæði til að varna því að gögn um þá týnist ekki og til að koma í veg fyrir að sömu upplýsinga sé sífellt óskað eftir. Slíkt eykur álag á sjúklinginn og er tafa- og kostnaðarsamt fyrir heilbrigðiskerfið og samfélagið allt. Í dag eru á annan tug mismunandi gagnagrunna í notkun í heilbrigðiskerfinu sem tengjast illa eða ekki.
Aðgerðir 3.1, 3.2 og 3.3
Þjálfun og endurmenntun fagfólks
Sjúkraflutningamenn og annað heilbrigðisstarfsfólk þarf að geta sinnt fötluðu fólki, sem oft hefur aðrar þarfir. Margt fólk er skráð hjá Medic Alert, en hver er hæfni vettvangs- eða viðbragðsaðila í aðstæðum þar sem einstaklingur með mænuskaða eða MND notar þungan hjólastól og lyftan í húsinu rúmar ekki sjúkrabörur? Viðbragðsaðilar þurfa að vera vel búnir þegar koma þarf sjúkra- eða hjálpartækjanotendum til hjálpar í aðstæðum þar sem flestir komast úr án teljandi aðstoðar. Aðgerð 7.5 kemur til móts við þær þarfir.
Þá er æskilegt að tækni sé til staðar í sjúkrabílum til að nota þegar ekki er túlkur á staðnum fyrir fólk sem ekki getur tjáð sig með talmáli, t.d. heyrnarlausir og heyrnarskertir.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ
Drög að aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana
Mál nr. S-46/2026. Heilbrigðisráðuneytið
Umsögn ÖBÍ, 4. mars 2026

