
Adobe Stock
Breytingartillagan miðar að því að „lyfta sé þjónustuð einu sinni á ári þegar um er að ræða hjólastólalyftu,“ en ekki fjórum sinnum á ári eins og gerð er krafa um í gildandi reglugerð. Þá er lagt til að nægilegt verði að Vinnueftirlitið skoði slíkar lyftur annað hvert ár. Ástæðan er sögð sú að „tíðni eftirlits með hjólastólalyftum geti valdið miklum kostnaði, ekki síst fyrir þá einstaklinga sem þurfa á slíkum lyftum að halda á heimilum sínum.“
Að mati ÖBÍ gengur breytingartillagan of langt. Samkvæmt þeim reglum sem gilda um lyftibúnað í Evrópu (meðal annars í gegnum LOLER – Lifting Operations and Lifting Equipment Regulations) þarf lyftibúnaður sem ber fólk, þar á meðal hjólastólalyftur, að fara í ítarlega skoðun á sex mánaða fresti. Lyftubúnað sem eingöngu er ætlað að flytja vörur þarf hins vegar ekki að yfirfara oftar en á 12 mánaða fresti.
Öryggi fólks má ekki skerða. Þegar lyfta bilar eru hjólastólanotendur ósjálfbjarga. Lyftur sem eru í notkun utanhúss bila sérstaklega oft enda þola þær illa íslenska veðráttu. Enn fremur eru fæstar hjólastólalyftur í eigu einstaklinga heldur í eigu ríkisins í gegnum Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) eða þjónustuaðila í rekstri, og bera þeir því sjaldnast kostnaðinn.
ÖBÍ leggja áherslu á að hjólastólalyftur séu yfirfarnar af þjónustuaðilum og skoðaðar af Vinnueftirlitinu ekki sjaldnar en á sex mánaða fresti.
Hjólastólalyftur sem settar eru í bíla þarf líka að yfirfara árlega rétt eins og annan öryggisbúnað í bifreiðum. Skoðun á lyftunum, sem eru í eigu ríkisins í gegnum SÍ, á að greiða af íslenska ríkinu.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ
Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 54/1995, skráningu, eftirlit og umsjón með lyftum og lyftubúnaði til fólks og vöruflutninga
Mál nr. S-53/2026. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 3. mars 2026

