HeilbrigðismálMálefni barnaUmsögn

Drög að reglugerð um skólaheilsugæslu

By 27. febrúar 2026No Comments
„Heilbrigðisstarfsmaður skoðar eyra á barni með eyrnasjá.“

ÖBÍ fagnar drögum að reglugerð um skólaheilsugæslu grunnskólabarna og markmiðum hennar um að efla heilbrigði og vellíðan barna með öflugri þjónustu í formi reglubundinna heilbrigðisskoðana, heilbrigðisfræðslu, forvarna, ráðgjafar og heilsueflingar. ÖBÍ leggur til nokkrar nauðsynlegar viðbætur og skýrari skyldur í reglugerðina.

Mikilvægt er að þær upplýsingar sem skólaheilsugæslan aflar um heilsufar barna verði skráðar í sjúkraskrá viðkomandi barns svo allar upplýsingar um heilsufar verði á einum stað.

Skilgreina þarf hvaða heilsuvanda og áhættuþætti skimað verður fyrir í b-lið, 6. gr. draga reglugerðarinnar og tryggja þarf skimun fyrir heyrn eða heyrnaskaða.

Skimun fyrir heyrn í for- og grunnskólum var hætt árið 2012 sem hefur haft slæmar afleiðingar fyrir þau börn sem hafa ekki fengið snemmbæra greiningu á heyrnarskerðingu. Þegar heyrnarskerðing uppgötvast ekki snemma getur það haft áhrif á málþroska barns og á félagsfærni og samskipti til framtíðar. Það getur haft áhrif á námsgetu barns og hegðun og valdið því að það sé talið hafa námserfiðleika sem í raun eiga rót í ógreindri heyrnarskerðingu.

Í 7. gr. draganna segir: „Skólaheilsugæsla grunnskólabarna felur a.m.k. í sér heilsufarsskoðanir í 1. 4. 7. og 9. bekk. … Heilsufarsskoðanir geta verið framkvæmdar af hjúkrunarfræðingi eða lækni.“ ÖBÍ leggur til að við síðustu setningu í 7. gr. bætist við eftirfarandi texti: “… eða öðrum sérhæfðum heilbrigðisstarfsmanni.”

ÖBÍ fagnar allri vinnu sem stuðlar að farsæld allra barna, jafnt fatlaðra og ófatlaðra og er tilbúið til að veita frekari umsögn eða ráðgjöf um þá þjónustu sem um ræðir.

Virðingarfyllst,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka


Drög að reglugerð um skólaheilsugæslu
Mál nr. S-44/2026. Heilbrigðisráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 27. febrúar 2026