HeilbrigðismálUmsögn

Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um málefni offitu

By 25. febrúar 2026No Comments

Að mati ÖBÍ er aðgerðaáætlunin mikilvægt skref í átt að öflugri og samþættri þjónustu við fólk með offitu.

ÖBÍ leggur mikla áherslu á að fólki sem glímir við offitu verði tryggt jafnt aðgengi að meðferð um land allt og að þjónustan verði fjármögnuð að fullu.

Að auki þarf að vinna markvisst gegn fordómum og tryggja virðingu fólks.

ÖBÍ leggst gegn því að álögur verði hækkaðar á sérlega orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur, sbr. aðgerð 1 undir kaflanum “Forvarnir og skimum”. Slík tegund matvara er oft ódýrari en aðrar matvörur og því neytt í meira mæli af fólki með lægri tekjur, s.s. örorkulífeyristakar. Af því sögðu gagnrýnir ÖBÍ aðgerð sem hækkar matarkostnað fyrrnefnds hóps og um leið skerðir kaupmátt hans.

Að mati ÖBÍ eru öflugar forvarnir og aðgerðir sem miða að því að gera heilsusamlegar matvörur ódýrari hentugri til að draga úr neyslu óheilsusamlegra matvara.

ÖBÍ leggur áherslu á að notendur og hagsmunasamtök taki virkan þátt í innleiðingu og eftirfylgni áætlunarinnar og lýsir yfir vilja til áframhaldandi samstarfs við stjórnvöld.

Virðingafyllst,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka


Drög að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun um málefni offitu
Mál nr. S-39/2026. Heilbrigðisráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 25. febrúar 2026