Skip to main content
AðgengiHúsnæðismálUmsögn

Drög um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

By 8. október 2025nóvember 11th, 2025No Comments

Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um drög að frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, mál nr. S-176/2025

ÖBÍ réttindasamtök  taka undir markmið sameiningar á starfsemi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) og Skipulagsstofnunar til að mæta auknum kröfum um betri heildaryfirsýn yfir þróun byggðar, sjálfbæra landnotkun, húsnæðisþörf og nýtingu auðlinda. Slík sameining gæti aukið skilvirkni í grunnþjónustu og stuðlað að nauðsynlegum kerfisbreytingum. ÖBÍ bendir þó á að sameining ein og sér tryggi ekki sjálfkrafa betri árangur eða skilvirkni. Því er brýnt að markmið, hlutverk og verkferlar hinnar nýju stofnunar séu skýrlega skilgreind frá upphafi.

Skipulag og uppbygging mannvirkja hafa veruleg áhrif á daglegt líf fatlaðs fólks og möguleika þesstil að taka virkan þátt í samfélaginu. Þegar samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) verður lögfestur hér á landi, mun hvíla lagaleg skylda á íslenska ríkinu að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja fötluðu fólki jafnan aðgang að byggðu umhverfi, samgöngum og opinberri þjónustu – hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli.

ÖBÍ vill koma eftirfarandi athugasemdum og tillögum á framfæri.

Aðgengi allra til samfélagslegrar þátttöku og heildstætt skipulag

Í drögunum kemur fram að dæmi séu um að það skorti á samþættingu milli skipulags- og mannvirkjamála sem ættu að heyra sögunni til. Jafnframt eru tiltekin dæmi um aðgengismál, en byggingarreglugerð gerir kröfu um að fyrir hendi sé tiltekinn fjöldi stæða fyrir hreyfihamlaða á byggingarreit sem þarf jafnframt að gera ráð fyrir þegar stærð og fjöldi bílstæða er áætlaður í deiliskipulagi, en er ekki alltaf gert eða að þau uppfylla ekki skilyrði reglugerðarinnar.

ÖBÍ bendir á að fjölmargar hindranir sem fatlað fólk mætir í daglegu lífi má rekja til þess að ekki er nægilegt tillit tekið til fjölbreyttra þarfa fólks í skipulagi, hönnun, framkvæmdum og eftirliti með mannvirkjum og umhverfi. Þótt lög kveði á um að byggt skuli fyrir alla, þá eru niðurstöðurnar í reynd oft aðeins hagstæðar fyrir hluta íbúanna.

Nýleg dæmi sýna vilja sveitarfélaga til að fækka mjög bílastæðum í nýjum hverfum vegna tenginga við almenningssamgöngur sem eru á teikniborðinu. Jafnvel þegar gert er ráð fyrir bílastæðum hreyfihamlaðra á svæðinu þarf að uppfylla skilyrði um lágmarksfjölda, hámarksfjarlægð að inngöngum bygginga og hindrunarlausa umferðarleið fyrir hreyfihamlað fólk með stæðiskort allt árið um kring. Með sameiningu stofnana eru meiri líkur en hingað til á að gætt sé að þessu frá upphafi.

Stór hluti íbúðarhúsnæðis á Íslandi er óaðgengilegur fötluðu fólki, og staðan er jafnvel enn verri þegar kemur að atvinnuhúsnæði og öðrum opinberum mannvirkjum. Þrátt fyrir að núgildandi skipulagslög og mannvirkjalög eigi að tryggja aðgengi, þá tekst það ekki alltaf í framkvæmd. Eitt helsta vandamálið er að ábyrgð á aðgengismálum er dreifð á milli margra stofnana, sem leiðir til skorts á samhæfingu og getur valdið óskilvirkni og ábyrgðarleysi.

Ófullnægjandi hönnun húsnæðis og nærumhverfis getur takmarkað verulega möguleika fatlaðs fólks til að búa sjálfstætt og lifa sjálfstæðu lífi. Dæmi eru um þar sem fatlað fólk á öllum aldri hefur orðið nánast innilokað á eigin heimili vegna þess að hönnunin gerir ekki ráð fyrir öðrum en einstaklingum með fulla hreyfigetu. Slíkt felur í sér samfélagslega mismunun.

ÖBÍ telur að ný sameinuð stofnun sem sinnir skipulagi og mannvirkjagerð hafi einstakt tækifæri til að snúa þessari þróun við og stuðla að raunverulegu aðgengi fyrir alla. Með markvissri stefnumótun og góðum undirbúningi getur stofnunin orðið leiðandi afl í innleiðingu og fræðslu um algilda hönnun, í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt SRFF.

Í drögunum kemur fram að tryggja þurfi framboð á fjölbreyttum íbúðum sem stuðla að sjálfbærni og félagslegri samheldni. Jafnframt er bent á þörf fyrir skilvirkni í ferlum skipulags og samhæfa og einfalda undirbúning framkvæmda við uppbyggingu íbúðarhúsnæðis til að mæta eftirspurn og tryggja húsnæðisöryggi.

ÖBÍ leggur til að stofnunin setji sér heildstæða aðgengis- og inngildingarstefnu sem skal uppfærð og endurskoðuð á þriggja ára fresti. Einnig er mikilvægt að stofnunin ráði sérfræðinga í aðgengismálum, sem hefðu það hlutverk að:

  • Tryggja að aðgengi sé grundvallarviðmið í allri stefnumótun, hönnun og leyfisveitingum.
  • Veita ráðgjöf og stuðning við mótun reglna, viðmiðana og hönnunarleiðbeininga í samræmi við hugmyndafræði algildrar hönnunar.
  • Meta áhrif fyrirhugaðra framkvæmda á aðgengi og leggja fram úrbótatillögur.
  • Hafa eftirlit með framkvæmdum og beita sér fyrir því að mistök í aðgengismálum séu leiðrétt í tæka tíð.

Jafnframt leggur ÖBÍ áherslu á að stjórnendur og starfsfólk nýrrar stofnunar fái reglubundna fræðslu um mikilvægi og gildi algildrar hönnunar, svo að aðgengi verði sjálfsagður hluti af öllu skipulagi og mannvirkjagerð.

Skýrt samfélagslegt hlutverk

Hlutverk nýrrar Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnunar þarf að vera skýrt skilgreint í lögum. Sérstaklega þarf að tryggja að stofnunin beri skýra samfélagslega ábyrgð gagnvart öllum almenningi óháð efnahag, fötlun eða öðrum aðstæðum. Lögin ættu sérstaklega að kveða á um að stofnunin skuli stuðla að uppbyggingu aðgengilegra og inngildandi mannvirkja, í samræmi við SRFF og hugmyndafræði algildrar hönnunar. Það þarf að vera ljóst að aðgengi sé ekki aukaatriði heldur grundvallarviðmið í öllu skipulagi og mannvirkjagerð.

Gagnlegt er að líta til sambærilegrar stofnunar í Noregi, Husbanken, sem hefur skýrt og samfélagslega þýðingarmikið hlutverk með það að markmiði að fyrirbyggja að almenningur lendi í vandræðum á húsnæðismarkaðnum. Husbanken veitir lán og styrki sem gera fólki kleift að kaupa, halda eða bæta húsnæði sitt, þar á meðal til að bæta aðgengi að eldra húsnæði þannig að það nýtist fólki óháð hreyfigetu eða fötlun. Stofnunin hefur einnig það hlutverk að stuðla að öruggum og fyrirsjáanlegum leigumarkaði.

ÖBÍ telur æskilegt að nýja íslenska stofnunin fái sambærilegt samfélagslegt hlutverk og Husbanken. Slíkt hlutverk myndi fela í sér að tryggja að fólk geti búið við öruggar, aðgengilegar og viðeigandi aðstæður óháð fjárhagsstöðu eða líkamlegum aðstæðum og að stuðlað sé að réttlátum húsnæðismarkaði sem tekur mið af fjölbreytileika samfélagsins.

Það væri enn fremur í samræmi við markmið stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins 2024 um að stofnaður verði aðgengis- og aðlögunarsjóður til að styrkja fatlað fólk til breytinga á húsnæði.

ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Með vinsemd og virðingu,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ

Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
Mál nr. S-176/2025. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 8. október 2025