
Adobe Stock
ÖBÍ réttindasamtök lýsa yfir algjörri andstöðu við frumvarp til breytinga á lögum um fjölmiðla og jafnframt furðu sinni á tilbúnaði og rökstuðningi þess. Mikið er rætt um lýðræði og almannahag á meðan í raun er verið að festa í sessi ríkistyrki sem ýta undir einangrun og mismunun gagnvart jaðarsettum hópum.
Frá því að þessar tillögur litu fyrst dagsins ljós sem undanfari lagasetningar 2021 hafa ÖBÍ réttindasamtök skilað inn fjórum umsögnum, þar sem áréttað er að þessi lög geri ekkert nema að festa í sessi mismunun í aðgengi að upplýsingum. Ekkert tillit hefur verið tekið til umsagnanna og áhyggjur samtakanna ekki ávarpaðar í greinargerð. Þvert á móti stendur „Öll hafi jafna möguleika á þátttöku í lýðræðislegri umræðu þar sem tjáningarfrelsi er virt“ þó að það sé deginum ljósara að ekkert sé gert í þessum lögum til þess að tryggja þetta háfleyga markmið.
Samanburður við Norðurlöndin
Í greinargerð með frumvarpinu er farið yfir lagaumhverfi á Norðurlöndum um stuðning til einkarekinna fjölmiðla, en það sætir furðu hvernig hægt sé að lesa sig í gegnum þá lagabálka án þess að rekast á þær grundvallar kröfur sem þar eru gerðar um aðgengi fyrir öll. Hér fylgir stutt yfirferð:
Danmörk
Í dönskum lögum eru kröfur um aðgengi fyrir fatlað fólk í fjölmiðlum byggðar á fjölmiðlalögum, stafrænum aðgengislögum og skyldum opinberra þjónustumiðla. Lögin gera ráð fyrir að hljóð- og myndmiðlar vinni að því að gera efni aðgengilegt, til dæmis með textun, táknmálstúlkun og hljóðlýsingu. Strangari kröfur gilda um opinbera þjónustumiðla, sérstaklega DR, sem samkvæmt þjónustusamningi sínum verður að tryggja aukið aðgengi að fréttum og öðru efni. En einkaaðilinn TV2 þarf, samkvæmt samningum að lúta sömu reglum um allt það efni sem fellur undir „public service“ hugtakið.
Svíþjóð
Þar eru meginlög „Radio och tv lag (2010:696)“. Þar sem í 5. kafla 12. gr. er gerð krafa um að fjölmiðlaþjónustur skuli vera aðgengilegar fyrir fatlað fólk og að aðgengi skuli tryggt með textun, táknmálstúlkun, upplestri texta eða sambærilegri tækni. Í Svíþjóð eru lagalegar aðgengiskröfur almennt skýrari og ná bæði til opinberra og einkarekinna fjölmiðla, þó umfangið sé ákveðið í sértækum ákvörðunum stjórnvalda og eftirlitsstofnunar.
Noregur
Helstu lögin eru „Lov om kringkasting“ og „audiovisuelle bestillingstjenester“. Í lögunum er kveðið á um að sjónvarpsstöðvar og streymisþjónustur skuli auka aðgengi að efni fyrir fatlað fólk. Fjölmiðlar falla einnig undir „Likestillings- og diskrimineringsloven“. Lögin kveða á um skyldu til algildrar hönnunar (universell utforming) í þjónustu sem er opin almenningi.
Löndin hafa auk þess öll innleidd Evróputilskipanir sem setja sérstakar aðgengiskröfur á stafræna miðlun, sbr. EU 2016/2102 og EU 2019/882.
Tillögur að breytingum
62. gr. f – stuðningshæfur rekstrarkostnaður.
Að við upptalningu á starfheitum bætist við aðgengissérfræðingar og kostnaður við notendaprófanir.
62. gr. g – sem nýr töluliður fyrir almennan rekstrarstuðning.
Fjölmiðlaveita skal hafa aðgengisstefnu sem lýsir hvernig tryggt er að efni og miðlun sé aðgengileg fötluðu fólki.
62. gr. g – sem skilyrði fyrir styrkhæfi.
Efni sem birt er á stafrænum miðlum fjölmiðils skal að lágmarki uppfylla kröfur aðgengisstaðla í samræmi við WCAG 2.1 AA eða EN 301.549.
62. gr. h – skilyrði fyrir fjölmiðlum sem fá viðbótarstuðning (fyrir landsvísu almannaþjónustu).
„Fjölmiðill sem sækir um viðbótarstuðning skal tryggja að helstu efnisflokkar séu aðgengilegir fötluðu fólki, m.a. með:
- textun á helstu myndefni,
- hljóðlýsingu á völdu efni eftir því sem við á,
- aðgengilegu viðmóti á vef og snjalltækjalausnum.“
62. gr. j eða 62. gr. k – um mat, úttektir og endurupptöku.
Úthlutunarnefnd getur krafist upplýsinga um hvernig fjölmiðlaveita hafi uppfyllt skyldur um aðgengi fyrir fatlað fólk skv. þessum lögum og metur árlega hvort úrbóta sé þörf.
Íslenska
Íslenskt táknmál er samkvæmt lögum nr. 61/2011 handhafa stöðu fyrsta máls fyrir táknmálssamfélagið. Lögin leggja jákvæða skyldu á stjórnvöld til að tryggja táknmálsnotendum fullan aðgang að upplýsingum og samfélagslegri umræðu á eigin máli. Í frumvarpinu er lögð rík áhersla á að efla ritstjórnir fjölmiðla „í því skyni að styðja við fréttaþjónustu, lýðræðislega umræðu og treysta stöðu íslenskrar tungu“, sbr. 62. gr. d. Þar sem íslenskt táknmál er viðurkennt sem sjálfstætt mál og hluti af íslenskri menningar- og málaflóru er eðlilegt að skilyrði um stuðning taki einnig mið af aðgengi táknmálsnotenda að fjölmiðlaefni. Með því að tryggja aðgengi að fréttum og upplýsingum á íslensku táknmáli er ekki aðeins fylgt lögbundnum skyldum heldur jafnframt eflt lýðræði og þátttaka alls almennings í samræmi við markmið frumvarpsins.
Kostnaður
Það ætti ekki að þurfa að ræða kostnað í þessu samhengi þar sem hér er um styrkveitingar að ræða sem eru í samræmi við þau alþjóðalög og áherslur sem íslenska ríkið er bundið af. En það má halda því til haga að með máltækni byltingu undanfarinna ára er kostnaður við aðgengislausnir óverulegur. Það sætir einnig furðu að ráðuneyti sem hefur lagt sitt að mörkum til þess að tryggja aðgengi að íslensku fyrir öll skuli ekki setja sér lágmarks viðmið í styrkveitingum, bæði til þess að tryggja hagnýtingu þessara lausna og lýðræðisleg markmið þeirra.
Samantekt
Það er ótækt að ríkið styrki fjölmiðlun sem nýtist ekki stórum hópi fatlaðs fólks sem býr nú þegar við skert aðgengi að upplýsingum. Það er ótækt að Ísland verði eitt Norðurlanda að fjármagna óaðgengilegt efni fyrir almenning með ríkisstyrkjum. Það er ótækt að sérstakur stuðningur við lýðræðislega umfjöllun og kosningar sé ekki aðgengilegur öllum landsmönnum.
Þessu er hægt að breyta með því að aðlaga frumvarpið með þeim tillögum sem hér eru settar fram og þannig tryggja aðgengi fyrir öll og að enginn sé skilin eftir í fréttaeyðimörk.
Ekkert um okkur án okkar!
Virðingarfyllst,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka
Rósa María Hjörvar
stafrænn aðgengisfulltrúi og verkefnastjóri ÖBÍ
Frumvarp til breytinga á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011 (stuðningur við einkarekna fjölmiðla)
Mál nr. S-55/2026. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Umsögn ÖBÍ, 13. mars 2026

