HeilbrigðismálUmsögn

Réttindi sjúklinga (takmörkun á beitingu nauðungar)

By 6. febrúar 2026No Comments
Landspítalinn við Hringbraut, geðdeild.

ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið til umsagnar frumvarp um réttindi sjúklinga. ÖBÍ vill koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri.

Samtökin fagna öllum skrefum í átt að auknum réttindum sjúklinga og brotthvarfi frá notkun þvingana og nauðungar í heilbrigðiskerfinu, sem ættu að felast í þessu frumvarpi. Hins vegar er mikilvægt að halda til haga að hér er eingöngu um takmarkanir á notkun þvingana að ræða. En líkt og Evrópuráðið hefur bent á (2019), hefur slík löggjöf ekki dregið úr beitingu nauðungar og þvingana í öðrum Evrópulöndum. Því er nauðsynlegt að stjórnvöld stígi fastar inn, með kjölfestu í Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, og stefni að útilokun allrar nauðungar í heilbrigðiskerfinu. ÖBÍ taka heilshugar undir umsögn Geðhjálpar um þetta mál.

ÖBÍ fagnar því að gerðar voru breytingar á frumvarpinu frá fyrri framlagningu sem snýr að réttindum fatlaðs fólks. Í þessari útgáfu hefur bann við mismunun á grundvelli fötlunar verið bætt við upptalningu 2. mgr. 1. grein laganna um bann við mismunun. Er það m.a. gert með hliðsjón af lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Einnig er jákvætt að skylt verði að tilkynna öll tilvik nauðungar til sérfræðiteymis, að gerð sé krafa um að starfsfólk á vakt hafi sótt námskeið um beitingu nauðungar, að notendum sé fjölgað í sérfræðiteymi svo eitthvað sé nefnt. ÖBÍ leggur áherslu á mikilvægi þess að aðkoma fatlaðs fólks sé tryggð þegar löggjöf sem varðar hagsmuni þess er til meðferðar. Í 3. mgr. 4. gr. samningsins segir að við ákvörðunartökuferli varðandi málefni fatlaðs fólks, skulu aðildarríki samningsins hafa náið samráð við fatlað fólk og tryggja virka þátttöku þess með milligöngu samtaka sem koma fram fyrir þess hönd.

Um nauðung og þvingun

Nauðung og þvingun eru ekki, og mega aldrei vera, úrræði í heilbrigðiskerfinu. Enda, eins og bent hefur verið á, frekar dæmi um úrræðaleysi. Afleiðingarnar geta verið gríðarlegar, bæði fyrir þann einstakling sem í hlut á og heilbrigðiskerfið í heild, þar sem með notkun þvingana verður til vítahringur sem kallar á frekari nauðung. Að auki eru dæmi um að einstaklingar forðist að leita til kerfisins af ótta við nauðung og þannig verkar hún takmarkandi á jafnt aðgengi að heilbrigðiskerfinu.

Þó vissulega sé hér um að ræða tilraun til að takmarka og skrásetja notkun þvingunar og nauðungar innan heilbrigðiskerfisins, sem tryggja eigi fötluðu fólki aukin réttindi og gagnsæi, þá er hætta á að frumvarpið festi frekar í sessi ákveðið úrræðaleysi innan kerfisins. Gjörningur sem í raun krefst mun víðtækari aðgerða til að hægt sé að taka á vandanum og feli þar með í sér aukna hættu á brotum gagnvart sjálfsákvarðanarétti fatlaðs fólks.

ÖBÍ taka heilshugar undir áhyggjur Geðhjálpar og Hugarafls, og ítreka að nauðsynlegt sé að setja metnaðarfull markmið um hvernig við tryggjum aðgengi og öryggi fatlaðs fólks innan heilbrigðiskerfisins. Vissulega felst ákveðið réttaröryggi í skilgreiningu ferla og atvikaskráningu, sem er bót á núverandi ástandi. Hins vegar er alls óvíst að frumvarpið skili sér í minni nauðung innan heilbrigðiskerfisins. ÖBÍ minnir á minnisblað með tillögum samráðshóps notendahópa um breytingar á lagafrumvarpi varðandi takmörk á beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu, dags. 29. nóvember 2023. Minnisblaðið tiltekur breytingar sem samráðshópurinn leggur til sem hafa það allar að leiðarljósi að þrengja heimildir til beitingu nauðungar, tryggja frekar tilkynningarskyldu heilbrigðisstofnanna og auka réttaröryggi sjúklinga almennt.

Að lokum vill ÖBÍ árétta að í nóvember á síðasta ári var samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks lögfestur á Alþingi. Í 12. gr. samningsins er kveðið skýrt á um um jafna viðurkenningu fatlaðs fólks fyrir lögum og b-lið 1. mgr. 14. gr. samningsins þar sem kemur m.a. fram að aðildarríkin skuli tryggja að fatlað fólk sé ekki svipt frelsi sínu með ólögmætum hætti eða að geðþótta og að frelsissvipting í hvaða mynd sem er sé lögum samkvæmt og að fötlun skuli ekki undir neinum kringumstæðum réttlæta frelsissviptingu.

Virðingarfyllst,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Sigurður Árnason
lögræðingur ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka


Réttindi sjúklinga (takmörkun á beitingu nauðungar)
319. mál, lagafrumvarp RSS þjónusta
Umsögn ÖBÍ, 6. febrúar 2026


Frumvarpið er endurflutt, sjá 1105. mál á 154. þingi – réttindi sjúklinga.