HeilbrigðismálSjúkratryggingarUmsögn

Sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir (ýmsar breytingar)

By 6. febrúar 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök fagna því að allar breytingar hvað varðar réttindi sjúklinga séu hluti af virku samráðsferli og hvetur ÖBÍ ráðuneytið eindregið til þess að hafa samtökin með í ráðum frá fyrsta stigi. ÖBÍ eru heildarsamtök fatlaðs fólks sem er almennt jaðarsettur hópur í samfélaginu og er í flestum tilvikum háður aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Þetta er fjölbreyttur hópur, oft með sértækar og mismunandi þarfir, og því skiptir virkt samráð sköpum til þess að tryggja réttindi fjölbreytts hóps.

Í þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar á lögum um sjúkratryggingar og um ófrjósemisaðgerðir. ÖBÍ fagnar sumum breytingum en hefur athugasemdir við aðrar og alvarlegar athugasemdir að þeim sem snúa að aukinni kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni. Í þessari umsögn leggja ÖBÍ áherslu á eftirfarandi:

1.

Fylgdarmaður verði hluti kostnaðar við flutning á milli sjúkrahúsa

ÖBÍ fagnar breytingu á 28. gr. laganna um flutningskostnað á milli sjúkrahúsa, þar sem lagt er til að við bætist: „þar með talinn kostnaður vegna fylgdarmanns“. Það er mikið réttlætismál fyrir fatlað fólk að flutningskostnaður sem til fellur á flutningi á milli sjúkrastofnana nái einnig til fylgdarfólks.

2.

Stytting biðtíma eftir sjúkratryggingu

ÖBÍ fagnar og styður breytingu á 10. gr. laganna sem fjallar um biðtíma eftir sjúkratryggingu sem eru sex mánuðir. Lagt er til í frumvarpinu að stytta biðtímann niður í þrjá mánuði „til hagsbóta fyrir þá einstaklinga sem flytjast búferlum hingað til lands“. ÖBÍ veltir upp þeirri spurningu hvort ekki eigi að ganga alla leið og fella alveg niður þennan biðtíma eftir sjúkratryggingu til enn frekari hagsbóta fyrir fólk sem flytur búferlum til landsins. Það er lykill að ferða- og atvinnufrelsi fatlaðs fólks að aðgengi að heilbrigðisþjónustu sé sem greiðast og því þarf að ryðja öllum hindrunum úr vegi.

3.

Óheimilt er að leggja á aukagjöld í samningsleysi

ÖBÍ fagnar því að framvegis skuli það vera óheimilt að krefja sjúkling um greiðslu á aukagjöldum þegar þjónustuveitandi fær greitt samkvæmt gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands (SÍ). Á árunum 2018-2023 voru engir samningar í gildi á milli sérgreinalækna og SÍ. Á því tímabili var í gildi greiðsluþátttaka SÍ samkvæmt gjaldskrá stofnunarinnar. Til viðbótar tíðkaðist hjá mörgum sérgreinalæknum og sjúkraþjálfurum að krefja sjúklinga um greiðslu á aukagjöldum, t.d. komugjaldi, sem þessir aðilar mátu til að vega upp á móti tekjutapi þeirra vegna samningsleysis. Þessi aukagjöld komu sér mjög illa fyrir fatlað fólk og öryrkja sem öllu jafna nota heilbrigðisþjónustu í meira mæli en aðrir og tilheyra tekjulægri hópum. Af þeim ástæðum styður ÖBÍ þessa breytingu heilshugar.

4.

Miðlægur lyfjagreiðslugagnagrunnur

ÖBÍ styður áform um að SÍ starfræki miðlægan lyfjagreiðslugagnagrunn sem á að reikna út greiðsluþátttöku sjúkratrygginga og gjald einstaklinga við kaup á lyfjum. Með tilkomu gagnagrunnsins á áreiðanleiki greiðslukerfisins að aukast.

5.

Breytingar á stöðu sjúkratryggðra

Í drögunum er gert ráð fyrir að þrengja verulega aðkomu ríkisins að greiðslu sjúkra- og heilbrigðisþjónustu utan EES. Vísað er til þess að einstaklingar geti tryggt sig á eigin vegum í gegnum tryggingarfélög, og að kostnaðarþátttöku ríkisins verði haldið í lágmarki. Hér er vert að staldra við af tveimur ástæðum, annars vegar vegna þess að þrátt fyrir að í dag bjóðist viðbótartryggingar sem hægt er að kaupa, þá hefur fatlað fólk slæma reynslu af því að sækja sér tryggingar á almennum markaði og því óljóst hvaða réttindastaða er uppi, skyldu þessar markaðsaðstæður breytast. Hins vegar er fatlað fólk háð ýmiss konar viðbótarþjónustu, túlkaþjónustu, aðstoðarfólki og viðeigandi aðlögun. Það þarf að tryggja að fatlað fólk hafi sama aðgengi til jafns við aðra að sjúkra- og heilbrigðisþjónustu án íþyngjandi gjalda eða kostnaðar.

6.

Aukin greiðsluþátttaka vegna þjónustu sjúkraþjálfara og sálfræðinga

ÖBÍ er uggandi yfir þessum áformum að undanskilja komugjöld í almenna greiðsluþátttökukerfinu og telur ekki ljóst hvaða áhrif þetta muni hafa á fatlað fólk. Fatlað fólk sækir meira en annað fólk þjónustu sjúkraþjálfara og sálfræðinga og hefur lægri tekjur en meðaltal launa. Þetta gengur gegn því markmiði að auka aðgengi að þessari heilbrigðisþjónustu, sem í tilfelli fatlaðs fólks er lykill að aukinni virkni á vinnumarkaði. Því er mikilvægt að þessi áform mega alls ekki leiða til aukins kostnaðar fyrir fatlað fólk. Má í þessu samhengi minna á að eftir gildistöku örorkulífeyrisbreytinga almannatrygginga 1. september sl. verður fatlað fólk ekki lengur sjálfkrafa metið til 75% örorku, en er þrátt fyrir það jafn háð þjónustu sjúkraþjálfara og sálfræðinga og áður. Það þarf því að skoða vel hvaða afleiðingar breytingarnar hafa á fatlað fólk.

7.

Aukin greiðsluþátttaka almennings vegna heilbrigðisþjónustu

Mikilvægt er að tryggja að fjarheilbrigðisþjónusta verði aðgengileg öllum og því mikilvægt að koma í veg fyrir hindranir. Ekki er gott ef þjónustan er bundin við að einstaklingur greiði t.d. með rafrænni auðkenningu. Innan ÖBÍ er skilningur á því að hægt verði að innheimta gjald fyrir fjarheilbrigðisþjónustu, og hvetur ÖBÍ stjórnvöld til hófsemi í þeirri gjaldtöku. Allar slíkar fyrirætlanir þarf að skoða vel í samráði við fatlað fólk og með hliðsjón af algildri hönnun.

Hvað varðar gjaldtöku vegna útkalls sjúkrabifreiðar þegar þjónusta er veitt án þess að flutningur eigi sér stað, þá vill ÖBÍ taka fram að oft er annar aðili sem hringir á sjúkrabíl en sá sem þarf á aðstoðinni að halda. Sem dæmi er oft hringt í sjúkrabíl þegar flogaveikur einstaklingur fær flogakast en svo þegar sjúkrabíllinn kemur á vettvang er kastið liðið hjá og ekki þörf á aðstoð. Til viðbótar er er mikilvægt að hafa í huga að í núverandi greiðslufyrirkomulagi eiga þeir sem eru með 75% örorkumat rétt á afslætti af þessum greiðslum, og mikilvægt að hér verði engin réttindaskerðing hvað það varðar. ÖBÍ hvetur til þess að þetta fyrirkomulag verði endurskoðað og komið verði á fót skilvirku og gagnsæju kerfi hvað varðar sjúkraflutninga og þeir verði jafnvel hluti af greiðsluþátttökukerfinu.

8.

Heimild til SÍ að meta hvort einstaklingur sé raunverulega búsettur hér á landi og fella niður sjúkratryggingu ef svo er ekki

Lagt er til í drögunum heimild SÍ til að fella niður sjúkratryggingu þegar sjúkratryggður flytur búsetu sína frá Íslandi en heldur lögheimilisskráning verði skýrður. Í þessu sambandi leggur ÖBÍ á að taka þarf tillit til mismunandi aðstæðna fólks sem af ýmsum ástæðum dvelur eða ílengist erlendis, t.d. vegna eigin veikinda eða annarra nákominna, eða vegna félagslegrar stöðu. Mikilvægt er að málsmeðferð um niðurfellingu sjúkratryggingar sé skýrt og að reglur stjórnsýslulaga um leiðbeiningaskyldu og andmælarétt séu hafðar í hávegum. Niðurfelling sjúkratrygginga er mjög íþyngjandi, einkum í tilviki fólks í viðkvæmri stöðu, og því mikilvægt að hinn sjúkratryggði njóti vafans. Þá áréttar ÖBÍ á að skv. 11. gr. laga um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018 er einstaklingum heimilt að halda lögheimili sínu á Íslandi þrátt fyrir dvöl erlendis vegna veikinda. Ef tillögur 8. gr. verða að lögum verður að tryggja að í framkvæmd verði gengið úr skugga um hvort einstaklingar njóti slíkrar undanþágu.

9.

Afnám gjaldfrelsis ófrjósemisaðgerða

Í frumvarpinu er lagt til að fella brott ákvæði um að ófrjósemisaðgerðir skuli vera gjaldfrjálsar. Að mati ÖBÍ er slík breyting varhugaverð, því aukin gjaldtaka í heilbrigðisþjónustu og sem dæmi að fella niður gjaldfrelsi ófrjósemisaðgerða, getur skapað ójafnræði í aðgengi að þjónustu sem snýr að sjálfsákvörðunarrétti og líkamlegu sjálfræði. Af þeim sökum telur ÖBÍ það mikilvægt að þessum gjaldfrjálsa rétti verði haldið.

10.

Stjórn SÍ lögð niður

ÖBÍ leggst gegn því að leggja niður stjórn Sjúkratryggingar Íslands. Í stað þess að leggja stjórn SÍ niður, leggur ÖBÍ til að hlutverk stjórnarinnar verði eflt til að veita starfsemi SÍ eftirlit og aðhald. Verði það gert með m.a. með því að tryggja í lögum setu fulltrúa notenda og réttindahafa í stjórninni. Til dæmis gætu hagsmunasamtök fatlaðs fólks og eldri borgara haft rétt til að tilnefna stjórnarmenn.

Lokaorð

ÖBÍ fagna því að kostnaður fylgdarmanna verði innifalinn við flutning á milli sjúkrahúsa, sem og stytting biðtíma eftir sjúkratryggingu, og að óheimilt verði að leggja aukagjöld á notendur í samningsleysi. Aftur á móti hefur ÖBÍ áhyggjur af tillögu um breytingu um stöðu sjúkratryggða sem eru erlendis og utan EES svæðisins sem og aukinni greiðsluþátttöku í heilbrigðisþjónustunni.

ÖBÍ er reiðubúið til að fylgja þessari umsögn eftir á fundi velferðarnefndar og áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum.

Ekkert um okkur án okkar.

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtökum


Sjúkratryggingar og ófrjósemisaðgerðir (ýmsar breytingar)
328. mál, lagafrumvarp
Umsögn ÖBÍ, 6. febrúar 2026