Skip to main content
AlmannatryggingarUmsögn

Skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.)

By 26. nóvember 2025desember 3rd, 2025No Comments

ÖBÍ réttindasamtök hafa tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld o.fl. ÖBÍ vill koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri.

Leiðrétting á frítekjumarki barna

ÖBÍ lýsir fullum stuðningi við a-lið 2. gr. Frumvarpsdraganna, um hækkun á frítekjumarki barna undir 16 ára aldri, þar sem lagt er til að frítekjumarkið verði 300.000 kr. á ári í stað 180.000 kr., sem er í samræmi við hækkun vísitölu frá árinu 2013 en þau hafa verið óbreytt síðan 2013.

Að mati ÖBÍ er þessi lagabreyting mjög mikilvæg fyrir örorkulífeyristaka þar sem tekjur barna eru taldar með tekjum foreldra sem fá greiddan lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins (TR) og geta þær tekjur leitt til skerðinga á greiðslu örorkulífeyrisins.

ÖBÍ vill koma því á framfæri að börn teljast fullorðin við 18 ára aldur og því telur ÖBÍ mikilvægt að frítekjumarkið eigi við öll börn undir 18 ára aldri.

Lækkun á frítekjumarki tekjuskatts af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði

ÖBÍ lýsir andstöðu við það að lækka frítekjumark tekjuskatts af leigutekjum einstaklinga af íbúðarhúsnæði úr 50% í 25%. Leigutekjur, eins og aðrar fjármagnstekjur, skerða lífeyrisgreiðslur almannatrygginga og því er lítill hvati fyrir lífeyristaka að leigja út húsnæði.

Skattafrádráttur vegna kaupa á hlutabréfum framlengt

ÖBÍ lýsir andstöðu við að framlengja skattafrádrátt vegna hlutabréfakaupa með því að framlengja gildistíma úrræðisins um tvö ár. Skattafrádráttur er niðurgreiðsla/styrkur sem nýtist fyrst og fremst tekju- og eignameiri einstaklingum sem fá niðurgreiðslur úr sameiginlegum sjóðum landsmanna.

Verðbætur skerði ekki lífeyri almannatrygginga

Verðbætur skerða lífeyri almannatrygginga vegna verðbóta með ósanngjörnum hætti og draga út hvata til að spara. Að mati ÖBÍ á að fella niður þessar skerðingar og leggur til eftirfarandi lausn.

Verðbætur teljast til tekna samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 og lögum um tekjuskatt nr. 90/2003, þegar tekjugrunnur lífeyristaka, bæði örorku- og ellilífeyris er reiknaður. Þar af leiðandi geta verðbætur skert bæði örorku- og ellilífeyri og tengdar greiðslur. Vegna eðlis verðbóta er að mati ÖBÍ órökrétt og óréttlátt að verðbætur valdi slíkum skerðingum á lífeyri.

Þegar verðbólga er óstöðug geta verðbætur sem myndast hjá lífeyristökum valdið röskun á fjárhag og framfærslu þeirra. Lífeyristökum er skylt að gera tekjuáætlun hjá Tryggingastofnun TR). Við gerð slíkrar áætlunar hafa þau sjaldnast forsendur til að gera ráð fyrir hækkandi verðbólgu. Vegna verðbóta sem myndast við slíkar aðstæður krefur TR viðkomandi um greiðslu endurkröfu vegna ofgreidds lífeyris. Slíkar endurgreiðslukröfur geta verið mjög íþyngjandi mörgum lífeyristökum.

Við gerð fyrrnefndrar tekjuáætlunar er oftast byggt á tekjum ársins á undan og bætt við hugsanlegri hækkun verðbólgu. Á árunum 2022 og 2023 hækkaði verðbólgan mun meira en spár gerðu ráð fyrir sem varð til þess að verðbætur á bankainnistæðum hækkuðu umtalsvert. Afleiðingin var sú að ósamræmi varð á milli tekjuáætlana og raunverulegrar útkomu vegna hærri verðbólgu. Fyrir vikið fengu um tvöfalt fleiri lífeyristakar, bæði örorku- og ellilífeyristakar, endurkröfu frá TR við uppgjör þessara ára. Eins og neðangreind tafla sýnir hefur verðbólga árin 2022 til 2024 ætíð verið hærri en Þjóðhagsspá haustið áður.

Tafla 1

Taflan sýnir prósentutölur fyrir árin 2022, 2023 og 2024. Í fyrstu línu stendur „Þjóðhagsspá“ og tölurnar eru 3,30% fyrir 2022, 5,60% fyrir 2023 og 5,60% fyrir 2024. Í annarri línu stendur „Raun verðbólga“ og tölurnar eru 8,30% fyrir 2022, 8,70% fyrir 2023 og 5,90% fyrir 2024. Í þriðju línu stendur „Mismunur“ og tölurnar eru -5,00% fyrir 2022, -3,10% fyrir 2023 og -0,30% fyrir 2024, með rauðum stöfum.

Tilgangur verðbóta er að viðhalda verðtryggðri eign að teknu tilliti til verðlags og er að því leiti eðlislíkari eign en tekjum. Að leggja verðbætur að jöfnu við tekjur við útreikning á tekjugrunni greiðslna almannatrygginga er að mati ÖBÍ bæði órökrétt og óréttlátt. Vegna þessara skerðinga hafa lífeyristakar mun takmarkaðri möguleika á að ávaxta fé sitt en aðrir. ÖBÍ telur að um mismunun í garð lífeyristaka sé að ræða og feli í sér neikvæðan hvata til sparnaðar. Dæmi er um að sparifjárinneign uppá 1.000.000 rýrni niður í 858.000 kr. á einu ári (sjá töflu 2).

Tafla 2

Taflan sýnir upphæðir og prósentur tengdar inneign. Í fyrstu línu stendur „Höfuðstóll inneignar“ með upphæðinni 1.000.000. Í annarri línu stendur „Verðbólga“ með 12% og upphæðina 120.000. Í þriðju línu stendur „Höfuðstóll inneignar á föstu verðlagi“ með upphæðina 880.000. Í fjórðu línu stendur „Verðbætur banka á höfuðstól“ með 10% og upphæðina 100.000. Í fimmtu línu stendur „Höfuðstóll eftir verðbætur“ með upphæðina 980.000. Í sjöttu línu stendur „Fjármagnstekjuskattur“ með 22% og upphæðina 22.000. Í sjöundu línu stendur „Höfuðstóll eftir skatt“ með upphæðina 958.000. Í áttundu línu stendur „Skerðing bóta vegna verðbóta“ með upphæðina mínus 100.000. Í níundu línu stendur „Höfuðstóll eftir skerðingu“ með upphæðina 858.000.

Afstaða ÖBÍ er að það eigi ekki að telja verðbætur til tekna við útreikning tekjugrunns almannatrygginga. Miklir kostir myndu fylgja því að breyta lögum hvað það varðar. Um er að ræða mikið réttlætismál fyrir lífeyristaka, t.a.m. auka sparnað og myndi slík breyting hafa í för með sér verulega fækkun endurgreiðslukrafna. Fyrir vikið yrði minni röskun á framfærslu og fjármálum lífeyristaka og meiri sátt myndi skapast um lífeyriskerfið.

ÖBÍ leggur til að bæta verðbótum við upptalningu þess sem ekki telst til tekna í 2. mgr. 30. gr. sem og 2. mgr. 22. gr. laga um almannatryggingar.

Yrði sú leið ekki talin fær mætti fara þá leið að tryggja örorkulífeyristökum frítekjumark vegna vaxtatekna.

Hér að framan leggur ÖBÍ til að fallið verði frá áformum um skattafrádrátt vegna kaupa á hlutabréfum sem felur í sér hvata sem einkum er til þess fallinn að bæta fjárhag þeirra sem standa hvað best. ÖBÍ telur augljóslega brýnna að afnema þann neikvæða hvata á sparnað á herðar lífeyristaka sem hér hefur verið lýst.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtaka

Sigríður Hanna Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi ÖBÍ réttindasamtaka

Sigurður Árnason
lögfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka


Skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.)
257. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 26. nóvember 2025