
Adobe Stock
ÖBÍ réttindasamtök fagna framlagðri stefnu um farsæld barna og þeirri framtíðarsýn að byggja upp barnvænt samfélag þar sem réttindi barna eru í forgrunni. Samtökin leggja þó áherslu á að styrkja sérstaklega sjónarmið fatlaðra barna, enda standa þau frammi fyrir kerfisbundnum hindrunum í aðgengi, þátttöku og þjónustu.
ÖBÍ bendir á að fötluð börn búa oft við skert aðgengi að þjónustu, löngum biðtíma og mismunun í skóla-, íþrótta- og frístundastarfi. Því þarf að skilgreina mælanleg markmið um að draga úr þessum ójöfnuði.
Viðkvæmir hópar
Skilgreina verður fötluð börn skýrt sem forgangshóp og setja verður mælanleg markmið um að draga úr ójöfnuði, m.a. hvað varðar aðgengi að þjónustu og biðtíma.
Þátttaka
Tryggja verður að fötluð börn hafi raunverulega möguleika til þátttöku í samfélaginu. Það krefst þess að samskiptaleiðir séu aðgengilegar öllum börnum, að upplýsingar sé á máli sem öll börn skilja, t.d. á auðlesnu máli, á táknmáli o.s.frv. Tryggja verður aðgengi að íþróttastarfi (aðstaða, þjálfun, stuðningur). Fjármögnun þarf að taka mið af auknum stuðningsþörfum.
Viðeigandi stuðningur
ÖBÍ leggur áherslu á snemmtækan og samfelldan stuðning. Mikilvægt er að þjónusta sé ekki háð greiningum einum saman, tryggt sé að stuðningur falli ekki niður við tilfærslu milli kerfa og að fjölskyldur þurfi ekki sjálfar að bera ábyrgð á samhæfingu þjónustu.
Fagfólk
Skortur á sérhæfðu fagfólki hefur bein áhrif á fötluð börn. ÖBÍ telur að bæta þurfi starfsskilyrði og mönnun, efla sérfræðiþekkingu á fötlun og fjölbreytileika barna og tryggja verður stöðugleika í þjónustu.
ÖBÍ telur að tillagan sé mikilvægt skref í átt að bættri farsæld barna á Íslandi. Til að hún nái markmiðum sínum er þó nauðsynlegt að skerpa sérstaklega á stöðu fatlaðra barna og tryggja að aðgerðir skili raunverulegum umbótum í þeirra lífi.
Ekkert um okkur án okkar!
Virðingarfyllst,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ – réttindasamtaka
Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ – réttindasamtaka
Stefna og framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030
579. mál, þingsályktunartillaga.
Umsögn ÖBÍ, 1. apríl 2026

