KjaramálMálefni barnaUmsögn

Tekjuskattur (frádráttur vegna tómstunda barna)

By 23. mars 2026No Comments

“ … skilyrði um tímalengd og form starfsemi verði endurskoðuð með það að markmiði að tryggja að fjölbreytt og aðgengileg úrræði fyrir öll börn falli undir ákvæðið.“

ÖBÍ réttindasamtök fagna því að lögð sé fram tillaga sem hefur það að markmiði að styðja við barnafjölskyldur og auka aðgengi barna að skipulögðu æskulýðsstarfi. Slík þátttaka hefur ótvírætt gildi fyrir félagsþroska, heilsu og velferð barna og getur haft mikilvægt forvarnargildi.

ÖBÍ réttindasamtök telja að sú aðferð sem frumvarpið byggir á, þ.e. frádráttur frá tekjuskattsstofni, sé ómarkviss aðgerð ef markmiðið er að styðja við þær fjölskyldur sem raunverulega standa höllum fæti gagnvart kostnaði vegna tómstunda barna. Slíkur frádráttur hefur í för með sér að opinber stuðningur rennur einnig til mjög tekjuhárra heimila sem þurfa ekki á slíkum stuðningi að halda.

Þegar stjórnvöld grípa til stuðningsaðgerða á borð við þessa ber þeim að tryggja að þær séu þannig úr garði gerðar að þær gagnist sérstaklega þeim hópum sem hafa raunverulega þörf fyrir stuðning.

ÖBÍ vill sérstaklega undirstrika að fatlað fólk og fjölskyldur fatlaðra barna búa oft við aukinn kostnað vegna fötlunar, svo sem vegna sértæks búnaðar, aðstoðar eða aðgengis að þjónustu.

Samtökin telja að skilyrði frumvarpsins um að starf standi yfir í að minnsta kosti tíu vikur og fari fram undir stjórn fagaðila geti útilokað ýmis úrræði sem nýtast fötluðum börnum sérstaklega vel, þar sem slík úrræði eru oft sveigjanlegri eða sérsniðin að þörfum hvers barns.

Hugtakið „fagaðili“ sbr. tilvísun til æskulýðslaga nr. 70/2007, er ekki skilgreint nánar í frumvarpinu og er því óljóst hvaða menntun, réttindi eða reynsla telst fullnægjandi til að uppfylla þetta skilyrði. Að mati samtakanna skapar þetta óvissu og hættu á þröngri túlkun sem getur útilokað fjölbreytt og sérhæft tómstundastarf sem nýtist börnum með ólíkar þarfir, þar á meðal fötluðum börnum. Slík úrræði byggja oft á reynslu og sérþekkingu sem fellur ekki endilega undir hefðbundna skilgreiningu á „fagaðila“, en eru engu að síður lykilþáttur í að tryggja raunhæft aðgengi að þátttöku. ÖBÍ leggur því til að annaðhvort verði hugtakið skilgreint skýrar í lögum eða að tryggt verði með skýrum hætti í reglugerð að túlkun þess verði nægjanlega rúm til að taka til fjölbreyttra forma æskulýðs- og tómstundastarfs, með hliðsjón af jafnræði og aðgengi allra barna.

Í ljósi framangreinds leggur ÖBÍ til eftirfarandi:

  • Að skoðað verði að breyta úrræðinu í beinan stuðning eða endurgreiðslu sem nýtist aðallega þeim fjölskyldum sem þurfa á stuðningi að halda.
  • Að sérstaklega verði tryggt að fjölskyldur fatlaðra barna njóti aukins stuðnings, til dæmis með hærri greiðslum eða sértækum úrræðum.
  • Að skilyrði um tímalengd og form starfsemi verði endurskoðuð með það að markmiði að tryggja að fjölbreytt og aðgengileg úrræði fyrir öll börn falli undir ákvæðið.

Ekkert um okkur án okkar!

Virðingarfyllst,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ – réttindasamtaka

Andrea Valgeirsdóttir
lögfræðingur ÖBÍ – réttindasamtaka


Tekjuskattur (frádráttur vegna tómstunda barna)
433. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 23. mars 2026