
Adobe Stock
ÖBÍ réttindasamtök hafa um nokkurt skeið bent á að þörf sé á að breyta löggjöf um almannavarnir og bæta viðbragðsáætlanir svo að betur sé gert ráð fyrir björgun fatlaðs fólks í hamförum og öðru hættuástandi. Í orðskýringum 3. gr. frumvarps til laga um almannavarnir á 157. löggjafarþingi (þingskjal 396 – 287. mál) er þess vegna gert ráð fyrir að fjallað sé um sérstöðu fatlaðs fólks og viðkvæmra hópa í samfélaginu í viðbragðsáætlun. Frumvarpið hefur ekki náð fram að ganga og þar af leiðandi skortir sérstaklega umfjöllun um fatlað fólk í lögum um almannavarnir.
Ástæða er til þess að setja inn sérstök ákvæði sem snúa að fötluðum íbúum sveitarfélaga í lög um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum, nr. 49/1997.
Sérsniðið áhættumat þarf að fara fram á hættusvæðum þar sem kortlagt er hvaða íbúar þurfi beina aðstoð við rýmingu, hvaða hjálpar- og lækningatæki þeir noti og þurfi að fylgja. Meta þarf sérstaklega hverjir búa innan hættusvæða, hvort þeir geti sjálfir brugðist við viðvörunum, hvort aðgengi að rýmingarleiðum sé nægilegt og hvaða möguleika viðbragðsaðilar hafi til að liðsinna þeim á réttan hátt í aðstæðum.
Skrá þarf hvaða íbúar þurfi sérstaka aðstoð og hvaða aðstoð þeir þurfi við rýmingu. Taka þarf í reikninginn að aðstæður geta verið mismunandi hverju sinni og að þar sem er skriðuhætta gæti þurft að útbúa sérstakar rýmingarleiðir og ferla fyrir fólk með hreyfihömlun. Þó skal bent á að í Fjarðarbyggð hefur kortlagning farið fram á búsetu og samsetningu íbúa eftir aldri, kyni, fjölda og svo framvegis. Skráning eftir fötlun hefur verið takmörkuð enda er um viðkvæmar persónuupplýsingar að ræða. Skoða þarf sérstaklega hvernig hægt sé að leysa þann vanda.
Viðvörunarkerfi og upplýsingar þurfa að ná til allra auk þess sem nálgast þarf fólk sem á erfitt með að átta sig á aðstæðum með varfærni. Reynslan hefur sýnt okkur að margt fólk ræður illa við að vera skyndilega kippt út úr sínum daglega veruleika og við rýmingu svæða eiga margir erfitt. Því þarf að gera ráð fyrir að fólk sé stutt í gegnum ástandið með samfelldri sál- og félagslegri aðstoð.
Þá þurfa neyðarathvörf þurfa að vera aðgengileg og vel útbúin og halda þarf rýmingar-æfingar með þátttöku fatlaðs fólks.
Ekkert um okkur án okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ
Stefán Vilbergsson
verkefnastjóri ÖBÍ
Varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón)
499. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 17. mars 2026

