
Athyglissvæði við tröppur
Mannréttindahúsið
Leiðbeiningar um lagningu á leiðarlínum og athyglissvæðum / leiðarlínukerfi innanhúss eru til að skapa gott aðgengi fyrir blinda og sjónskerta.
Leiðbeiningarnar eru ætlaðar hönnuðum, verkkaupum og öðrum sem koma að hönnun og framkvæmd opinberra bygginga.
Tekið er mið af ISO 23599:2019 um leiðarlínur og athyglissvæði og ÍSTN CEN/TR 17621:2021 um aðgengi og nothæfi manngerðs umhverfis þar sem það er tekið fram.
Leiðarlína er lína sem lögð er á gólfflöt og skilur sig frá umhverfi með lit, hæðarmun og yfirborðsáferð.
Báðum megin við leiðarlínu þarf að vera að minnsta kosti 0,6 m autt svæði. Á svæði umhverfis leiðarlínukerfið má ekki staðsetja húsgögn, auglýsingaskilti eða annað sem hindrað getur aðgengi.
Áþreifanlegar leiðarlínur og athyglissvæði skulu ekki skapa hættu á að fólk hrasi um þær eða verði öðrum hindrun. Hæð á leiðarlínum og / eða bólum eða þverlínum í athyglissvæðum innandyra á að vera 3,5 ± 0,5 mm (ÍSTN CEN/TR 17621:2021).
Efsta breidd ílangra lína með flötum toppi, sem notaðar eru sem leiðarlínur, þarf að vera á bilinu 17 mm – 30 mm en botnbreidd breiðari en toppurinn (10 ± 1 mm). Því samfelldari sem leiðarlínur eru því auðveldara er að fylgja þeim. Ef notaðar eru stuttar línur (stangir) mega þær ekki vera styttri er 270 mm. Ef bil er haft á milli þeirra ætti það að vera frá 10 mm – 30 mm.
Í sundlauga- og búningsherbergjum þar sem eðlilegt er að ganga berfættur nægir 1 mm hæð á leiðarlínunni.
Athyglissvæði er afmarkaður flötur með upphleyptri áferð, oftast með doppum / bólum.
Athyglissvæði er afmarkaður flötur með upphleyptri áferð, oftast með doppum / bólum. Athyglissvæði eru sett við tröppur sem vísa niður og við stefnubreytingu. Minnsta dýpt og breidd á athyglissvæðum er 600 mm (600 mm x 600 mm). Þar sem pláss er takmarkað má í undantekningartilvikum minnka athyglissvæði í 400 x 400 mm.
Þegar athyglissvæði er notað við tröppur niður skal breiddin á því ná yfir alla breidd tröppusvæðisins. Miðað er við að dýptin á athyglissvæðinu sé 900 mm og nái fram á tröppubrún. Þó má taka mið af umfangi svæðis og minnka dýpt athyglissvæðis í 600 mm.
Athyglissvæði er sett í leiðarlínukerfi þegar um stefnubreytingu er að ræða til að fólk átti sig á því hvar á að breyta um stefnu og í hvaða átt. Út frá athyglissvæðinu halda leiðarlínur áfram.
Við stefnubreytingu sem er minni en 90° er ekki nauðsynlegt að vera með athyglissvæði.
Ekki þarf að leggja athyglissvæði við lyftur, fyrir framan neðsta þrep í tröppum, við afgreiðsluborð eða við inngang á rými.
Hægt er að leita ráðgjafar um leiðarlínur og áherslusvæði hjá Blindrafélaginu blind@blind.is og Sjónstöðinni sjonstodin@sjonstodin.is
Blindrafélagið og ÖBÍ réttindasamtök 2025, apríl.
Með breytingum 2026, maí.