Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt með EAPN og ÖBÍ réttindarsamtökum

17. október @ 12:00 - 16:00

Tökum spjallið um fátækt á Íslandi!

Á laugardaginn bjóðum við ykkur að kíkja til okkar í Kringluna fyrir utan Vero Moda í tilefni alþjóðlegs baráttudags gegn fátækt, 17. október.

Kjarahópur ÖBÍ réttindasamtaka og EAPN á Íslandi (European Anti-Poverty Network) standa saman að viðburði þar sem við vekjum athygli á stöðu fólks sem býr við fátækt á Íslandi, bjargráðum og leiðum til úrbóta.
Taktu þátt í fræðsluprófi, snúðu lukkuhjóli, spjallaðu við fulltrúa samtakanna og kynntu þér Gildruna – hlaðvarp um fátækt á Íslandi.

Um 35.000 einstaklingar á Íslandi búa við fátækt, þar af rúmlega 10.000 börn. Með samtali og aukinni vitund getum við stuðlað að breytingum.
Við hlökkum til að sjá ykkur í Kringlunni!

 

Upplýsingar

  • Dagsetning: 17. október
  • Tími:
    12:00 - 16:00
  • Viðburðir Flokkur: