Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Fræðsluröð ÖBÍ – Fjáröflun og markaðsmál almannaheillafélaga

21. janúar @ 16:00 - 19:00

Fyrsta námskeið vorsins í Fræðsluröð ÖBÍ; Fjáröflun og markaðsmál almannaheillafélaga.
Á námskeiðinu verður fjallað um helstu áskoranir og tækifæri í fjáröflun og markaðsmálum almannaheillafélaga. Rýnt verður í hugmyndir og leiðir til að auka sýnileika, rækta tengsl og sjálfbærni starfseminnar. Viðburðurinn hentar öllum sem koma að rekstri, markaðs- eða fjáröflunarstarfi almannaheillafélaga.

Námskeiðið verður haldið hér í Mannréttindahúsinu Sigtúni 42, 21. janúar kl. 16:00-19:00.

Kostnað af námskeiðahaldinu ber ÖBÍ. Boðið er upp á táknmáls- og rittúlkun.

Leiðbeinendur:

Andri Árnason – framkvæmdastjóri Takk sem hefur sérhæft sig í styrktarsamfélögum, markaðsetningu og þjónustu við almannaheillafélög.
Kristín Jezorski – markaðsstjóri hjá Takk sem hefur unnið að mörgum stórum herferðum tengdum vitundarvakningu og fjáröflun fyrir almannaheillafélög.
Flóki Guðmundsson – sérfræðingur í fjáröflun og viðskiptatengslum hjá Takk. Hann hefur stuðlað að vexti góðgerðarfélaga á Íslandi í yfir 10 ár og er vottaður sérfræðingur í verkefnastjórnun.

Upplýsingar