Skip to main content
Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Greinaskrif sem vopn í baráttunni / Fræðsluröð ÖBÍ fyrir aðildarfélög

21. febrúar @ 13:00 - 16:00

Miðvikudaginn 21. febrúar 2024 kl. 13-16:00, hjá ÖBÍ í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42.
 
Á vinnustofunni verður farið yfir þætti sem snúa að greinarskrifum með það að markmiði að auðvelda þátttakendum að skrifa áhugaverðar og áhrifaríkar greinar og nýta sem vopn í baráttunni. Skráning hér

Umfjöllunarefni: 

1. Hugmyndavinnan

Að velja umfjöllunarefni, leita efniviðar og spegla sig í efninu. Að finna mátulegan flöt á viðfangsefninu. Að meta hvort efnið henti höfundi og veki áhuga lesanda. Að virkja áhugahvötina við skrifin.

2. Ritunarvinnan

Að fá sjónræna yfirsýn yfir efnið. Að skilja ritunarferlið; að skrifað sé í skrefum. Að kynnast hinu hefðbundna greinarformi. Að átta sig á mikilvægi áhrifaríkrar uppbyggingar. Að skoða stíl og finna málsnið og höfundarödd sem hæfa efni og markhópi.

3. Frágangurinn

Að höfundur lesi skrif sín með tilliti til efnis, málfars og réttritunar. Að textinn fái faglegan yfirlestur og prófarkalestur. Að finna miðil til birtingar. Að búa sig undir viðbrögð lesenda.

Leiðbeinandi: Björg Árnadóttir er með meistaragráðu í menntunarfræðum og starfar sem rithöfundur, ritlistarkennari og blaðamaður.   

ÖBÍ ber allan kostnað af námskeiðshaldinu utan skráningargjaldsins, kr. 2500.-, sem greiðist af þátttakanda eða því aðildarfélagi sem hann starfar fyrir eða er félagi í.

Upplýsingar

Dagsetning:
21. febrúar
Tími:
13:00 - 16:00
Viðburðir Flokkur:

Vettvangur

Mannréttindahúsið
Sigtún 42
Reykjavík, Iceland
+ Google Map