Hey Google, talar þú íslensku? Opinn fundur um raddstýringu

ÖBÍ réttindasamtök og Almannarómur standa fyrir opnum fundi um raddstýringu í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, þann 16. febrúar klukkan 15:00.
Ræðum hvernig raddstýring getur opnað snjalltækni fyrir fleirum, sérstaklega mörgum fötlunarhópum, nú þegar lausnir á íslensku eru enn af skornum skammti. Förum yfir stöðuna, tækifærin og næstu skref. Hvað þarf til að íslenskar raddlausnir verði raunverulegur valkostur og hverjir geta rutt brautina. Öllum sem hafa áhuga á snjalltækni á íslensku er velkomið að taka þátt.




