Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Jafningjahittingur Tabú

11. mars @ 19:30 - 21:15

Tabú, feminísk fötlunarhreyfing, hefur haldið úti jafningjastuðningi og jafningjanámskeiðum fyrir fatlaðar konur og kvár í rúman áratug.

Tabú býður upp á opna jafningjahópa að jafnaði einu sinni í mánuði. Næsti jafningjahittingur er 11. mars  kl. 19:30-21:15 í Mannréttindahúsinu. 

Jafningjaráðgjöf og stuðningur á rætur sínar að rekja til valdeflingarstarfs fólks með geðrænanar áskoranir og hefur einnig verið notuð í ýmsum jaðarsettum hópum til þess að skapa öruggara og hugrakkara rými til samtals, speglunar og fræðslu fyrir fólk í sambærilegri stöðu. Jafningjaráðgjöf er einn af hornsteinum hugmyndafræði mannréttindabaráttu fatlaðs fólks um sjálfstætt líf og er álitin ein mikilvægasta leiðin til valdeflingar og sjálfræðis fyrir fatlað fólk. Þar er fatlað fólk álitið sérfræðingar í eigin lífi og með dýrmæta þekkingu á þeim hindrunum sem við mætum og hvernig við tæklum þær.

Jafningjastuðningur kemur ekki staðinn fyrir sálfræðiaðstoð en getur verið góð byrjun og/eða sjálfsvinna samhliða henni, sem og ein og sér.

Ef óskað er eftir táknmálstúlki vinsamlega hafið samband á tabu (hjá) tabu.is með eins góðum fyrirvara og mögulegt er.


» Opinn jafningjahittingur Tabú – febrúar 2026 | Facebook

» Um Tabú | Tabú

» Tabú | Facebook

Upplýsingar

  • Dagsetning: 11. mars
  • Tími:
    19:30 - 21:15
  • Viðburðir Flokkur:

Vettvangur