Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Mannréttindabíó – The Veto

22. apríl @ 10:00 - 11:00

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi býður á sérstaka sýningu þar sem heimildarmyndin The Veto verður sýnd í Mannréttindahúsinu 22. apríl kl. 10:00.

The Veto er áhrifamikil og tímabær heimildarmynd sem varpar ljósi á neitunarvald fastra meðlima öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Í 80 ár hefur þetta vald verið stöðugt til umræðu. Þótt ólíklegt sé að neitunarvaldið verði afnumið vekur beiting þess upp alvarlegar spurningar, sérstaklega þegar því er beitt í tengslum við þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. Í myndinni ræða leiðandi sérfræðingar á alþjóðavettvangi raunhæfar leiðir til umbóta og hvernig rjúfa megi langvarandi pattstöðu innan öryggisráðsins og draga úr hættu á frekari stórátökum.

Leikstjóri myndarinnar, Tim Slade, verður viðstaddur og svarar spurningum úr sal eftir sýningu.

The Veto er brýn og mikilvæg heimildarmynd sem á ríkt erindi við öll sem hafa áhuga á mannréttindum, alþjóðamálum og hlutverki Sameinuðu þjóðanna í samtímanum.

Við hlökkum til að sjá þig í mannréttindabíó.

Upplýsingar