Mannréttindamorgunn – Samráðsfundur vegna allsherjarúttektar SÞ

Félag Sameinuðu þjóðanna og Mannréttindahúsið bjóða frjálsum félagasamtökum að bera saman bækur sínar fyrir allsherjarúttekt (UPR) Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttinda á Íslandi. Fundurinn fer fram í Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42, 21. maí frá 10.00 til 11.30.
Í byrjun fundar verður farið í örstuttu máli yfir helstu atriði allsherjarúttektarinnar, m.a. mikilvægar dagssetningar sem gott er að hafa í huga. Að því loknu er gólfið opið og eru fulltrúar þeirra samtaka hyggjast skrifa skuggaskýrslu hvattir til þess að deila helstu áherslumálum sínum með gestum í örstuttu máli. Ekki er ætlast til þess að stuðst verði við glærur en það er hægt ef þess er óskað. Athugið að ungmennaráðum félaganna er sérstaklega boðið að mæta og taka þátt í umræðum eftir kynningar. Vinsamlegast áframsendið boðið og hvetjið ykkar ungmennaráð/félög að mæta.



