Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Morgunbollinn – Get ég notað gervigreind í hvað sem er?

19. mars @ 10:00 - 11:00

Nú þegar sífellt fleiri eru að prófa sig áfram með að nota gervigreind í námi, starfi og einkalífi er afar gagnlegt að skilja aðeins betur hvernig hún virkar á bak við tjöldin. Á viðburðinum verður farið yfir hvernig gervigreindinni tekst að svara nánast hvaða spurningu sem er, og af hverju hún svarar stundum með algjöru bulli. Tekin verða dæmi um gagnleg not fyrir gervigreind, svo sem við vinnu með texta og tal, en líka fjallað um hvað skuli varast. Með því að skilja betur hvernig „svarti kassinn“ virkar öðlumst við aukið sjálfstæði og getum betur metið hvenær og hvernig við notum þessa nýju tækni.

 

Leiðbeinandi er Svanhvít Lilja Ingólfsdóttir er sérfræðingur í máltækni og gervigreind hjá máltæknifyrirtækinu Miðeind. 

Upplýsingar