Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Morgunbollinn – Kynnumst Átaki

12. mars @ 09:30 - 11:00

Morgunbollinn: Kynnumst Átaki

Heitt á könnunni frá 9:30 fyrirlestur hefst kl. 10:00.

Komdu og kynnstu Átaki, öflugu hagsmunafélagi fólks með þroskahömlun sem gekk nýverið í hóp aðildafélaga ÖBÍ á aðalfundi 2025.

Átak vinnur að því að efla sjálfstæði, valdeflingu og raunverulegt vald fólks með þroskahömlun yfir eigin lífi. Félagið er einstakt á Íslandi – það er stýrt af fólki með þroskahömlun sjálfu, fyrir fólk með þroskahömlun.

Á fundinum segja Jónína Rósa Hjartardóttir, formaður Átaks, og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir, framkvæmdarstjóri, frá starfi félagsins, framtíðarsýn og því hvers vegna rödd fólks með þroskahömlun skiptir máli – nú meira en nokkru sinni fyrr.

Upplýsingar