Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Réttindaganga ÖBÍ 1. maí

1. maí @ 13:30 - 15:30

ÖBÍ réttindasamtök hvetja öll til að fjölmenna í kröfugöngu þann 1. maí. Nú sem fyrr er mikilvægt að fatlað fólk á Íslandi láti vel í sér heyra og krefjist jöfnuðar og réttlætis, bættra kjara og að sköpuð séu störf við hæfi.

13:00 Safnast saman á Skólavörðuholti.

13:30 Gangan hefst og fer niður Skólavörðustíg, Bankastræti og Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila á Skólavörðuholti og síðan í göngunni niður á Ingólfstorg.

14:00 Útifundur hefst á Ingólfstorgi. Fundarstjóri er er Felix Bergsson, fjölmiðlamaður og leikari. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, ávarpar fundinn og Inspector Spacetime tekur lagið. Í lok fundarins verður samsöngur.

Mætum, krefjumst réttlætis og látum í okkur heyra.

Upplýsingar

  • Dagsetning: 1. maí
  • Tími:
    13:30 - 15:30
  • Viðburðir Flokkur: