ÖBÍ réttindasamtök hvetja allt fatlað fólk til að fjölmenna í kröfugöngu frá Skólavörðuholti niður á Ingólfstorg þann 1. maí.
Í ár er 101 ár frá því fyrsta kröfugangan á baráttudegi verkafólks var gengin og mikilvægt er að fatlað fólk á Íslandi láti vel í sér heyra og krefjist jöfnuðar og réttlætis.
Mætum, krefjumst réttlætis og látum í okkur heyra!