Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Samfélag, listir & líðan

9. júní @ 13:00 - 17:00
Abstrakt mynd frá Listahátið í Reykavík

Nemendur í meistaranámi í Listum og velferð við Listaháskóla Íslands eru breiður hópur fagfólks sem hefur áhuga á að þróa leiðir til að nýta listir í þágu félags- og heilsueflingar ásamt því að auka aðgengi og þátttöku ólíkra hópa í listtengdum verkefnum og viðburðum.

Á dagskrá verða meðal annars örverk, kynningar á listrannsóknum og tilraunir.

Fagfólk sem starfar að velferðarmálum er sérstaklega hvatt til að mæta.

Nánari lýsing á viðburði:

Hvað ef listin byði sig fram?

Meistaranám í listum og velferð umbreytist í stjórnmálaafl þar sem listin býður fram hlýju, traust, virðingu, aðgengi, samkennd og sköpunargleði sem stefnumál fyrir mýkra samfélag.

Frá kl.13.00-17.00 geta gestir:

Kynnt sér stefnuskrá Listaflokksins, horft á kosningavídeó

Búið til kröfuspjöld

Tekið þátt í að móta stefnuskrá flokksins

Sett hugmyndir í kjörkassa

Tekið þátt í skapandi verkefnum og leikjum sem auka tengsl og opna samtal.

Við spyrjum: 

Hvað gerir list og sköpun fyrir þig og hvað gæti hún gert ef hún fengi meira pláss í samfélaginu?

Hvernig geta listir haft áhrif á líðan og heilsu fólks?

Uppákomur:

13:20 – Opinn danstími með Seiglunni 

14:00 – Söngur og tónlist

14:30 – Kynningar á útskriftarverkefnum nemenda úr MA, Listum og velferð.

15:15 – Fíflalæti – Áhrif alvörulausra leikja á fullorðið fólk. Stýrt af Alexíu Björg

16:00 – Pallborð – Hvaða erindi eiga listir í velferðarkerfinu?

Stýrt af Ástbjörgu Rut Jónsdóttur.

Í pallborði:

Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, sviðshöfundur og fötlunarlistakona með næstum 5 háskólagráður. Elín Ebba Ásmundsdóttir, framkvæmdastjóri Hlutverkaseturs.

Regn Sólmundur Evu, myndlistarkvár.

Kristín Valsdóttir, prófessor við listkennsludeild LHÍ og fagstjóri MA í Listum og velferð.

Hjördís Anna Haraldsdóttir, baráttu- og fjöllistakona.

 

Í Sunnusal verða þátttökuverkefni og æfingar sem snúa að tengingu, nærveru, skynjun og slökun á milli klukkan 13 og 16..

Pallborð verður táknmálstúlkað.

Upplýsingar

  • Dagsetning: 9. júní
  • Tími:
    13:00 - 17:00
  • Viðburðir Flokkur: