Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Sunnudagur fyrir sálina

11. maí @ 11:00

Sunnudagur fyrir sálina

Valerie Fritz flytur einleiksverk fyrir selló.
10.maí kl. 11:00-11:30

Austurríski sellóleikarinn Valerie Fritz flytur undurfalleg einleiksverk fyrir selló í sal Mannréttindahússins í Sigtúni. Tónleikarnir eru um 30 mínútna langir, aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Johann Sebastian Bach (1685 – 1750)
Þættir úr einleikssvítu númer 2 fyrir selló

Benjamin Britten (1913 – 1976)
Úr Sólósvítu númer 3

George Crumb (1929 – 2022)
Úr Sónötu fyrir einleiksselló

Matthias Barolomey (f. 1985)
Fernambuk

 Í samstarfi við Hörpu og ECHO RISING STARS

Sellóleikarinn og tónlistarkonan Valerie Fritz er 29 ára gömul, fædd í Tyrol í Austurríki árið 1997. Hún nam sellóleik í Salzburg og á nú þegar að baki farsælan feril sem einleikari og túlkandi kammertónlistar. Hún hefur vakið athygli fyrir einkar frjótt og persónulegt verkefnaval og framúrskarandi sellóleik en hún hefur lagt mikla rækt við flutning nýrrar tónlistar og starfað náið með tónskáldum samtímans.

Valerie Fritz var í hópi ungs tónlistarfólks sem ECHO, samtök evrópskra tónlistarhúsa – völdu til að koma fram á tónleikum víðs vegar um álfuna veturinn 2025 – 2026. Verkefnið gengur undir heitinu ECHO Rising Stars.

Eftirfarandi tónlistarhús tilnefndu Valerie: Elbphilharmonie í Hamborg, Bozar í Brussel, Casa da Música í Porto, Kölner Philharmonie í Köln, Konzerthaus Dortmund og Musikverein Wien í Vínarborg.

 

Upplýsingar