Húsnæðismál
Langvinn veikindi eða slys leiða oft til lægri tekna og skertrar lánafyrirgreiðslu. Þörf verður því á félagslegu húsnæði, leiguhúsnæði, aðgengilegu húsnæði, vistun á sambýli og jafnvel gistirými fyrir ættingja.
Leiguhúsnæði - gisting
Hér fer á eftir samantekt yfir þá aðila sem bjóða leiguhúsnæði og er tryggara húsnæði til langframa ef öllum reglum er fylgt. Í mörgum tilfella er horft til sérþarfa hins fatlaða um aðgengi. Ítarlegri upplýsingar má finna í eftirtöldum undirflokkum vinstra megin á síðunni.
- BRYNJA hússjóður ÖBÍ á ríflega 700 íbúðir og eru þær eingöngu ætlaðar öryrkjum.
- Ýmiss félagasamtök fatlaðra og sjúklinga eiga nokkrar íbúðir til útleigu.
- Sveitarfélög mörg hver eiga félagslegt húsnæði til útleigu. Þann 1. janúar 2011 tóku sveitarfélögin við málaflokki fatlaðra af ríki og öll sambýli, áfangastaðir og þjónustukjarnar sem áður voru í umsjón svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra eru nú á forsjá sveitarfélaga.
- Húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur, ítarlegri umfjöllun í þeim flokki vinstra megin á síðunni.
- Gisting margir sem leita lækninga af landsbyggðinnni þurfa tímabundna leigu á gistirými.
Kaupleiguíbúðir
Kaupleiguíbúðir er valkostur sem gagnast sumum. Auk mánaðarlegrar leigu þarf oftast að greiða ákveðið grunngjald í upphafi búsetu. Tenglar hér fyrir neðan opnast á heimasíður þeirra samtaka.
Almennt um húsnæðismál
Í lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál er kveðið á um stjórnskipulag húsnæðismála þar sem velferðarráðherra fer með yfirstjórnina.
Samkvæmt lögunum skal Íbúðalánasjóður, sem er sjálfstæð ríkisstofnun, annast stjórn og framkvæmd húsnæðismála í umboði velferðarráðherra.
- Reiknivél fyrir húsaleigubætur.
- Almennar upplýsingar Velferðaráðuneytisins um húsaleigubætur
- Vaxtabætur til lækkunar á lánum vegna íbúðarkaupa.
