Segir öryrkja hlunnfarna um 200 þúsund á ári
Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ), segir helstu skýringa á vaxandi skattheimtu gagnvart lífeyrisþegum að leita í verulegri raunlækkun skattleysismarka, þ.e. að persónuafslátturinn hafi ekki haldið í við þróun verðlags. Einnig segir Garðar að lög sem sett voru fyrir fimm árum, um að lífeyrisgreiðslur skyldu a.m.k. fylgja þróun almennra launa í landinu, hafa verið þverbrotin.
Lesa meira
"Fátækt er tilkomin vegna brotalama í velferðarkerfinu"
40 þúsund krónur vantar mánaðarlega upp á fullan lífeyri frá Tryggingastofnun til þess að bótaþegar sem hafa ekki aðrar tekjur en frá ríkinu geti framfleytt sér miðað við lágmarks framfærsluviðmið. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Hörpu Njáls félagsfræðings. Ragna Sara Jónsdóttir fræddist nánar um þessar niðurstöður hjá Hörpu.
Lesa meira
Í sérsmíðuðum fjallgöngustól á tindinn
Í SÉRSMÍÐUÐUM stól komst Aðalheiður Bára Steinsdóttir frá bænum Mel í Skagafirði upp á Mælifellshnjúk (1.138 m y.s.), einhvern glæsilegasta tind Skagafjarðar og þó víðar væri leitað.
Lesa meira
Öryrkjabandalagið hlýtur nærri 60 milljónir króna í arf
Ólafur Gísli Björnsson, innheimtumaður, sem lést í Reykjavík 15. janúar síðastliðinn, ánafnaði Öryrkjabandalagi Íslands allar eigur sínar í erfðaskrá sem dagsett er 5. mars 1969. Um er að ræða um 36 milljónir króna í reiðufé auk þriggja lítilla íbúða. Má því gera ráð fyrir að upphæð gjafar Ólafs nemi nærri 60 milljónum króna.
Lesa meira
Vinnumarkaðurinn og fatlaðir
Að ráða fatlaða í vinnu þarf ekki að vera góðgerðarstarfsemi, segir Hilmar Harðarson. Það sem þarf er víðsýni og opinn hugur vinnuveitenda.
Lesa meira
Nær Hæstiréttur vopnum sínum?
Dómur Öryrkjabandalagsins vekur vonir um, segir Tómas Gunnarsson, að Hæstiréttur nái sjálfstæði í störfum gagnvart æðstu valdhöfum.
Lesa meira
Lesa meira
Hlutverk og eðli minnisblaðsins
Enn á ný hafa stjórnvöld verið dæmd fyrir að brjóta stjórnarskrárvarinn rétt á öryrkjum. Í kjölfarið kjósa forsætisráðherra og Jón Steinar Gunnlaugsson, hvor á sinn hátt, að skeyta skapi sínu á fjölmiðlum. Sá síðarnefndi, sem fyrir ári vann það þrekvirki að túlka fyrir þjóðinni hvað fælist í einföldum og skýrum dómsorðum Hæstaréttar, byrjar raunar á því að veitast með kunnuglegum hætti að formanni Öryrkjabandalags Íslands og lögmanni þess. Höfuðglæpur þeirra er að leyfa sér að vekja athygli á því að í minnisblaði ríkisstjórnarinnar til starfshóps Jóns Steinars er gefin ákveðin forskrift að dómi hópsins um dóm Hæstaréttar í öryrkjamálinu svokallaða.
Lesa meira
Minnisblaðið ekki samið af ríkisstjórninni
Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi formaður starfshópsins sem skipaður var í kjölfar öryrkjadómsins svokallaða, segir að sér þyki ekki hátt risið á viðbrögðum formanns Öryrkjabandalags Íslands, Garðars Sverrissonar, við minnisblaðinu sem forsætisráðuneytið afhenti honum á föstudag. Hann, ásamt lögmanni bandalagsins, Ragnari Aðalsteinssyni, veitist einnig að starfsheiðri þeirra sem skipuðu starfshópinn.
Lesa meira
Skipun nefndarinnar sjónarspil
Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir að minnisblað það, sem fylgt hafi skipunarbréfi starfshópsins sem skipaður hafi verið í kjölfar öryrkjadómsins svonefnda, sýni að skipan nefndarinnar hafi verið sjónarspil til að blekkja almenning.
Lesa meira
Minnisblað vegna dóms Hæstaréttar
Minnisblaðið sem Öryrkjabandalagið krafðist þess að fá afhent er dagsett 22. desember árið 2000. Bandalagið fór með málið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur sem dæmdi ríkinu í vil. Öryrkjabandalagið vann hins vegar málið í Hæstarétti.
Lesa meira

