
Mynd: Atli Már Indriðason
Í hinu einstaka umhverfi Selárdals í Arnarfirði stendur nú yfir sýningin Ómur eftir listafólk úr Listvinnzlunni. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík 2026 og hlaut styrk frá ÖBÍ réttindasamtökum. Hún stendur til 1. september og er opin alla daga í sumar.
Markmið Listvinnzlunnar er að stuðla að inngildandi lista-, menningar-, mennta- og atvinnulífi þar sem öll eiga heima. Hægt er að kynna sér starfsemi Listvinnzlunnar og listafólkið sem þar starfar hér.
Fjölmargir listamenn taka þátt í sýningunni og sýna verk sín. Á opnun sýningarinnar kom fram að listafólkið hefði tekist á við nýjan miðil, nýtt rými og nýjar aðstæður; list sem lifir undir berum himni og mótast af veðri og vindum. Sýningarstjóri er Margrét M. Norðdahl.
Megináhersla sýningarinnar er á skúlptúra sem unnir eru í samtali við hinn einstaka höggmyndagarð Samúels Jónssonar og verða hluti af garðinum sjálfum. Samúel sótti innblástur víða að úr heiminum en reisti verk sín í Selárdalnum. Þannig færði hann heiminn til sín í dalinn. Hann var á sínum tíma jaðarsettur í list sinni; sjálfmenntaður, óhefðbundinn og utan meginstrauma samtímans.
Ómur er virðing, viðbragð og áframhald. Sýningin er lifandi vitnisburður um að listin finnur sér farveg, jafnvel og kannski einna helst, utan hins hefðbundna.
Hægt er að lesa nánar um sýninguna og aðgengi hér.


