AðildarfélögFrétt

Kosningar og innleiðing SRFF til umræðu á formannafundi

By 30. janúar 2026febrúar 2nd, 2026No Comments

Formenn og aðrir fulltrúar aðildarfélaga ÖBÍ réttindasamtaka mættu til formannafundar í Mannréttindahúsinu í gær. Formannafundir eru haldnir tvisvar á ári til að tryggja samráð og upplýsingamiðlun milli stjórnar og aðildarfélaga. Aðildarfélög ÖBÍ eru 43 talsins og félagsmenn samtals fleiri en 40.000.

Fyrri hluti fundarins var nýttur í erindi Sigurðar Árnasonar, lögfræðings hjá ÖBÍ, þar sem hann stiklaði á stóru um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og fór að auki yfir þá vinnu sem fram undan er við að innleiða ákvæði samningsins.

Að innleggi Sigurðar loknu var farið í umræður og vinnu að því að móta áherslur ÖBÍ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Kosningarnar fara fram þann 16. maí.