Loading Viðburðir

« All Viðburðir

  • This event has passed.

Fræðsluröð ÖBÍ: Gervigreind í starfi félagasamtaka

31. ágúst @ 00:00

Námskeiðið Gervigreind í starfi félagasamtaka er hagnýtt og aðgengilegt námskeið fyrir stjórnendur, starfsmenn og sjálfboðaliða sem vilja nýta sér nýjustu tækni til að efla starfsemi sína með nýtingu gerfigreindar. Efni námskeiðsins skiptist í sjö meginkafla. Fyrst er farið yfir grunnatriði gervigreindar og hvernig tæknin virkar. Því næst er skoðað hvernig má nýta gervigreind til gagnaúrvinnslu og greiningar til að styðja við ákvarðanatöku. Þá er fjallað um skapandi skrif með gervigreind, svo sem gerð fréttabréfa, styrkumsókna og efnis fyrir samfélagsmiðla. Einnig er kynnt hvernig hægt er að skapa myndir með gervigreind fyrir kynningar og markaðsefni, ásamt lauslegri yfirferð um hvernig tæknin getur aðstoðað við forritun og sjálfvirknivæðingu einfaldra verkefna. Að lokum er komið inn á tónlistarsköpun með gervigreind og farið yfir siðferðileg álitamál, tækifæri og áskoranir sem fylgja notkun tækninnar.

Leiðbeinandi er Stefán Atli Rúnarsson, viðskiptafræðingur og sérfræðingur í gervigreind sem hefur haldið fjölmörg námskeið fyrir fyrirtæki og félagasamtök um hagnýta notkun gervigreindartækni. Hann heldur einnig úti halðvarpsþáttunum Gervigreindarklúbburinn fyrir áhugafólk um gervigreind. Stefán leggur áherslu á skýrar útskýringar, lifandi framsetningu og að þátttakendur öðlist sjálfstraust í notkun verkfæranna.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skýran skilning á möguleikum gervigreindar og geti nýtt hana á ábyrgan og markvissan hátt í þágu félagasamtaka.

Mikilvægt er fyrir áhugasama að skrá sig HÉR og tilkynna ef óskað er eftir rit- eða táknmálstúlkun.

Námskeiðið verður haldið í aðalrými Mannréttindahússins, Sigtúni 42, þann 11. mars kl. 16:00 – 18:00.

Kostnað af námskeiðahaldinu ber ÖBÍ.

Upplýsingar