ESBStafrænt aðgengiUmsögn

Þátttaka Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028-2034

By 11. mars 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök telja styrkjaumhverfi á evrópska efnahagssvæðinu hafa skipt sköpum fyrir fatlað fólk á Íslandi, og verið stór þáttur í að auka tækifæri þess og við að fjarlægja hindranir. Stofnanir, félagasamtök og fyrirtæki hafa haft tækifæri til þess að deila og auka þekkingu um þátttöku fatlaðs fólks á öllum sviðum samfélagsins.

Staða fatlaðs fólks í nútímasamfélagi verður síflóknari og krefst þekkingar og rannsókna. Stafræn þróun, færni og réttindi, tækifæri til menntunar og vinnu, möguleikar á þátttöku í tómstundum og aðgengi að hjálpatækjum og heilbrigðisþjónustu, eru nokkur þeirra málasviða sem hafa styrkst verulega í gegnum evrópskt samstarf þar sem styrkþegum hefur gefist tækifæri til þess að þróa lausnir og skiptast á þekkingu þvert á landamæri. Það er jafnframt reynsla ÖBÍ að þeir aðilar sem njóta styrkja frá evrópskum sjóðum séu langt um líklegri til þess að inngilda sjónarmið allra samfélagshópa og þar með talið fatlaðs fólks, sem skilar sér í betra samfélagi fyrir öll.

Íslensk stjórnvöld hafa átt í fullu fangi með að tryggja réttindi fatlaðs fólks í þeirri nýsköpun og þeim umbreytingum sem einkenna nútímasamfélög og þar hafa evrópsk verkefni skipt sköpum, þar sem þau eru ávallt unnin innan lýðræðislegs ramma og út frá gæðaferlum sem tryggja m.a. aðkomu fatlaðs fólks.

ÖBÍ telur að það sé mikið undir þegar kemur að því að ákveða þátttöku íslenskra stjórnvalda í evrópsku styrkjakerfi, og bendir jafnframt á að ef ekki verður af þátttöku þá þarf að byggja upp sambærilega ramma innanlands þar sem réttindi og sjónarhorn fatlaðs fólks eru miðlæg í öllu starfi. Á það sérstaklega við um samspil regluverks eins og það birtist á evrópska efnahagsvæðinu þar sem ávallt er tekið mið af t.d. evrópsku aðgengislöggjöfinni (EAA). Það er til lítils að fjárfesta í nýsköpun og þekkingu ef jaðarsettir hópar, líkt og fatlað fólk er, eru útilokaðir frá upphafi eins og raunin er oftast hér innanlands.

ÖBÍ telur sig vera hagaðila þegar kemur að þessum málum og vill ítreka hversu mikilvæg skýr lýðræðisleg stefna í þágu alls almennings er í öllum styrk- og fjárveitingum.

Ekkert um okkur – án okkar!

Virðingarfyllst,

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ

Rósa María Hjörvar
stafrænn verkefnastjóri ÖBÍ


Þátttaka Íslands í samstarfsáætlunum ESB 2028-2034
Mál nr. S-38/2026. Utanríkisráðuneytið
Umsögn ÖBÍ, 11. mars 2026