HúsnæðismálKjaramálUmsögn

Ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána (varanleg heimild)

By 9. apríl 2026apríl 13th, 2026No Comments

ÖBÍ réttindasamtök fagna almennt frumvarpinu og þeim heimildum sem frumvarpið veitir rétthöfum til að ráðstafa skattfrjálsu viðbótariðgjaldi til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól lána.

Fatlað fólk er fjölbreyttur hópur og sumt þeirra starfar í fullu starfshlutfalli og geta þar af leiðandi nýtt sér þessa heimild, á meðan aðrir eru í hlutastarfi.

Að mati ÖBÍ hefur greiðsla séreignasparnaðar inn á húsnæðislán einkum nýst tekjuhærri hópum frekar en meðal- og lágtekjuhópum. Því sér ÖBÍ sóknarfæri í því að aðlaga ákvæði frumvarpsins svo það grípi betur þennan fjölbreytta hóp. Í því ljósi er vert að benda á að nýtt almannatryggingakerfi tók gildi 1. september 2025 sem gerir ráð fyrir að hópur öryrkja fari á svokallaðan hlutaörorkulífeyri samhliða hlutastarfi. ÖBÍ vill koma eftirfarandi ábendingum og tillögum á framfæri.

Húsnæðisstaða fatlaðs fólks og hlutaörorka

Fatlað fólk á mun erfiðara með að bæta hag sinn, standast lánshæfismat og eignast húsnæði. Samkvæmt rannsókn Vörðu frá desember 2023 um stöðu fatlaðs fólks kemur fram að einungis 54% fatlaðs fólks býr í eigin húsnæði.

Einnig er vert að benda á skýrslu húsnæðishóps ÖBÍ um húsnæðismál fatlaðs fólks frá nóvember 2023, en þar kemur fram að 70% fatlaðs fólks sem býr í eigin húsnæði eignaðist húsnæðið sitt fyrir örorkumat.

Í þessu sambandi má benda á að atvinnuþátttaka öryrkja mun aukast í ljósi gildistöku nýs almannatryggingakerfis. Þau sem fara á hlutaörorku munu fá greiddan lífeyri sem nemur 82% af örorkulífeyri og geta haft tekjur upp að 350.000 án þess að greiðslurnar skerðist. Allar viðbótartekjur yfir því viðmiði skerðast um 45%. Eftirfarandi dæmi sýnir hvernig greiðslur í séreignasparnað geta nýst einstaklingi sem er á hlutaörorkulífeyri og á vinnumarkaði.

Taka verður fram að viðkomandi öryrki greiðir ekki í lífeyrissjóð af hluta örorkulífeyris síns.

Mánaðarlaun

350,000 kr.
Árslaun 4,200,000 kr.
Hlutur einstaklings í séreignasparnaði á ári (4%) 168,000 kr.
Hlutur atvinnurekenda í séreignasparnaði á ári (2%) 84,000 kr.
Alls í séreignasparnað á ári 252,000 kr.

Líkt og ofangreint dæmi sýnir, mun hópur fólks eingöngu geta nýtt ráðstöfunina að litlu eða takmörkuðu leyti. Í ljósi þess að frumvarpið gerir ekki kröfu um að umsækjendur nýti 120 mánuðina samfellt, geta einstaklingar sem eru t.d. tímabundið í hlutastarfi beðið með að nýta sér úrræðið þar til betur árar. Sá sveigjanleiki virkar hins vegar ekki fyrir einstaklinga á hlutaörorku í ljósi þess að hlutastarf viðkomandi er að öllum líkindum ekki tímabundin staða.

ÖBÍ leggur því til að tímamörkin verði felld út og einungis verði miðað við hámarksupphæð upp að fimm milljónum króna sem í upphafi hvers árs tekur breytingum í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils. Að mati ÖBÍ stuðlar hámarksupphæð án tímamarka að jafnara kerfi þar sem allir á vinnumarkaði hafa raunverulegt tækifæri til að fullnýta úrræði óháð starfshlutfalli eða launastöðu.

ÖBÍ áskilur sér rétt til að koma á framfæri frekari athugasemdum á seinni stigum.

Ekkert um okkur án okkar!

Alma Ýr Ingólfsdóttir
formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Gunnar Alexander Ólafsson
hagfræðingur ÖBÍ réttindasamtaka

Kjartan Þór Ingason
verkefnastjóri ÖBÍ réttindasamtaka

 


Ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána (varanleg heimild)
564. mál, lagafrumvarp.
Umsögn ÖBÍ, 9. apríl 2026