
Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, hafa undirritað samstarfssamning sem miðar að því að efla vernd fatlaðra kvenna og stúlkna gegn ofbeldi. Samningurinn gildir til þriggja ára, allt til 31. desember 2028.
Samstarfið er mikilvægt skref til að styrkja mannréttindi fatlaðra kvenna og stúlkna og auka sýnileika þeirra stuðningsúræða sem þeim standa til boða. Með samningnum vilja ÖBÍ og Kvennaathvarfið sameina krafta sína til að stuðla að aukinni vitund, betra aðgengi að upplýsingum og sterkari vernd fyrir þennan hóp.
Markmið samstarfsins er meðal annars að fatlaðar konur og stúlkur þekki rétt sinn til verndar gegn ofbeldi og misnotkun, viti hvert hægt er að leita eftir aðstoð og hafi betri upplýsingar um þann stuðning sem stendur til boða hjá Kvennaathvarfinu, ÖBÍ og öðrum viðeigandi aðilum. Þá verður farið í vitundarvakningarherferð.
ÖBÍ veitir Kvennaathvarfinu sömuleiðis ráðgjöf um þjónustu og aðgengi fyrir fatlað fólk í nýju húsnæði athvarfsins.

