
Fulltrúar frá ÖBÍ réttindasamtökum fjölmenntu að vana í kröfugöngu frá Skólavörðuholti á baráttudegi verkalýðsins, 1. maí. Í ár var gengið undir tveimur forgönguborðum. Á öðrum þeirra var krafa um atvinnutækifæri, og á hinum stóð einfaldlega „Biðlistinn – kjósum eitthvað annað“.
Biðlistinn er ný herferð ÖBÍ réttindasamtaka, í samstarfi við ENNEMM, til þess að vekja athygli á þeim fjölmörgu biðlistum sem eru eftir lögbundinni og nauðsynlegri þjónustu. Krafan er skýr, að undið sé ofan af þessum biðlistum án tafar.
Kynna má sér biðlistann nánar hér:
Við þökkum öllum þeim sem gengu með okkur á 1. maí, sem og þeim sem mættu í kaffi í Mannréttindahúsinu að lokinni göngu.

