Gleðigangan 2026
8. ágúst @ 14:00

Gakktu með ÖBÍ réttindasamtökum í Gleðigöngu Hinsegin daga laugardaginn 8. ágúst!
Gangan fer af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00. Gengið er þaðan eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar, en atriði halda áfram inn Sóleyjargötu og þaðan inn í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við.



