Regnbogaráðstefna Hinsegin daga 2026

Pride Centre – Iðnó
Regnbogaráðstefna Hinsegin daga verður haldin í fimmta sinn á Hinsegin dögum 2026.
ÖBÍ réttindasamtök taka þátt í Regnabogaráðstefnu Hinsegindaga 6. ágúst klukkan 13:00, í Iðnó með erindið Í mörgum kössum – Sögur um fötlun, hinseginleikann og mannréttindi.
Hinsegin fatlað fólk er alls konar og tilheyrir fjölbreyttum hinsegin- og fötlunarhópum sem og samfélaginu í heild sinni. En hvernig er að tilheyra mörgum kössum í félagslegu flokkunarkerfi og er margþætt mismunun algeng innan ólíkra hópa á Íslandi?
Til að skyggnast inn í þennan margbreytileika, sem endurspeglast í litum hinsegin pride fánans og fötlunar pride fánans, munum við heyra reynslusögur fólks úr ólíkum áttum sem á það sameiginlegt að tilheyra fleiri en einum lit og ræða áhrif þess á líf þeirra. Regnbogaráðstefnan hefst klukkan 9:30 og líkur klukkan 16:00 og öll erindi verða rittúlkuð.
Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunar má finna í gegnum hlekkina hér.
Regnbogaráðstefnan er haldin í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök.





