Loading Viðburðir

« All Viðburðir

Gleðigangan 2026

8. ágúst @ 14:00
Hópur fólks frá ÖBÍ réttindasamtökum tekur þátt í Gleðigöngu í miðborg Reykjavíkur. Þau ganga brosandi með regnbogafána, skilti og í bolum merktum ÖBÍ með regnbogalógói. Í kringum þau er fjöldi fólks að fagna, konfettí fyllir loftið og gleðin er allsráðandi. Á skiltum stendur: „Skert aðgengi fyrir öll sem falla ekki undir staðlaða liti í regnboganum!“

Gakktu með ÖBÍ réttindasamtökum í Gleðigöngu Hinsegin daga laugardaginn 8. ágúst!

Gangan fer af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00. Gengið er þaðan eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu og Fríkirkjuvegi. Gangan endar við gatnamót Fríkirkjuvegar og Skothúsvegar, en atriði halda áfram inn Sóleyjargötu og þaðan inn í Hljómskálagarðinn þar sem útitónleikar taka við.

Upplýsingar

  • Dagsetning: 8. ágúst
  • Tími:
    14:00
  • Viðburðir Flokkur: