Regnbogaskiltagerð ÖBÍ
5. ágúst @ 14:00 - 17:30

ÖBÍ réttindasamtök eru í regnbogastuði og bjóða öllum í skiltagerð miðvikudaginn 5. ágúst milli klukkan 14:00 og 17:30 í Myndlistaskóla Reykjavíkur við Rauðarárstíg 10, 4. hæð fyrir Gleðigönguna. Eingin þörf er að vera allan tíman og fólki frjálst að mæta þegar þeim hentar.
Á staðnum verður flest allt sem þarf til að búa til glæsileg skilti meðan birgðir endast, en öllum er frjálst að koma með hluti að heiman ef það er eitthvað sérstakt sem fólk vill bæta við sína hönnun.
Skiltin munu svo skína í atriði ÖBÍ í Gleðigöngunni laugardaginn 8. ágúst og hægt er að fá far með hópnum að göngunni frá Mannréttindahúsinu, Sigtúni 42 að Skólavörðustíg klukkan 12:00.
Hlökkum til að sjá ykkur!




